Kolbrún Baldursdóttir
kolbrunb@hive.is
www.kolbrun.ws
Fjölskylda
Ég er gift Jóni Guđmundssyni, líffrćđingi. Ég á tvćr dćtur, Karen Áslaugu, f. 1980 og Hörpu Rún f. 1989.
Karen er stúdent frá Verslunarskóla Íslands. Hún dvaldi um eins árs skeiđ í París ađ loknu stúdentsprófi. Ađ loknu BS prófi í hagfrćđi frá HÍ lá leiđ hennar til Árósa ţađan sem hún lauk meistaraprófi áriđ 2005. Í kjölfariđ gerđist hún starfsnemi um hálfs árs skeiđ hjá Utanríkisţjónustu Íslands međ ađsetur í Strasbourg. Karen er hagfrćđingur á hagfrćđisviđi Seđlabanka Íslands. Hún er í sambúđ međ Grétari Má Axelssyni, sérfrćđingi hjá Íslandsbanka og eiga ţau dótturina Rakel Sif, f. 07.07.09.
Harpa Rún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands, hrađbraut voriđ 2008. Hún er au-per í París ţar sem hún gćtir tveggja barna um tíu mánađa skeiđ. Harpa Rún er á 2. ári í lögfrćđi í HÍ.
Bernskan
Ég er fćdd í Reykjavík og sleit bernskuskónum í Vesturbćnum, á Víđimel og Nesvegi. Foreldrar mínir eru ţau Áslaug Kristín Sigurđardóttir og Baldur Gíslason en ţau eru bćđi látin. Ég er yngst fjögurra systkina. Elstur er Björn, síđan Hrafnhildur og ţá Bergljót.
Ég hef alla tíđ veriđ búsett í Reykjavík ađ undanskildum 3 árum ţegar ég var kennari viđ Grunnskóla Stokkseyrar og 5 árum ţegar ég var viđ framhaldsnám í sálfrćđi í Bandaríkjunum. Ég kom heim frá námi voriđ 1991.
Menntun
Ég lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1980, BA prófi frá Háskóla Íslands 1986 og meistaragráđu frá Rhode Island fylki í Bandaríkjunum í Námssálarfrćđi og ráđgjöf áriđ 1988. Voriđ 1991 lauk ég annarri meistaragráđu frá sama skóla í Félags- og persónuleikasálfrćđi. Áriđ 1993 lauk ég námi í Uppeldis- og kennslufrćđum til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands
Störf í dag , seta í stjórnum og nefndum
Ég hef síđastliđin ár átt sćti í stjórn eins af Sjálfstćđisfélögum Breiđholts nánar tiltekiđ Selja- og Skóga. Ég er frá ţví á ađalfundi 2008 varaformađur Íbúasamtakanna Betra Breiđholt. Frá ţví í febrúar 2008 hef ég átt sćti í Barnaverndarnefnd Reykjavíkur.
Ég hef veriđ félagi í Rótarýklúbbi Reykjavík-Austurbć frá árinu 1998 og er nú verđandi forseti (tek viđ embćtti forseta í júní 2010). Međal áhugamála er hreyfing, skógrćkt og landgrćđsla. Á ţriggja ára tímabili lagđi ég stund á Karate og hef brúna beltiđ í ţeirri íţrótt, (3ja kyu). Auk ţessa hef ég lagt stund á joga, Rope yoga og Pilates yoga er útihlaup og líkamsrćkt hluti af lífstílnum.
Eftir heimkomuna voriđ 1991 hóf ég störf hjá Fangelsismálastofnun ríkisins. Starfiđ fól í sér heimsóknir í fangelsi landsins ţar sem föngum var bođiđ upp á sálfrćđiţjónustu. Ég hef veriđ löggildur sálfrćđingur frá 1992 og rekiđ sálfrćđistofu í Reykjavík frá sama tíma.
Ég hóf ţví nćst störf hjá Međferđarstöđ ríkisins fyrir unglinga sem ári 1996 var breytt í Stuđla. Á Stuđlum var ég yfirsálfrćđingur allt til ársins 1998 en ţá hóf ég störf hjá Barnavernd Kópavogs ţar sem ég starfađi til ársins 2006.
Allar götur síđan ég kom heim frá námi hef ég veriđ virk í námskeiđahaldi og kennslu. Ég hef kennt viđ Menntaskólann viđ Hamrahlíđ, Fósturskólann og viđ Háskóla Íslands. Ég hef haldiđ fjölmarga fyrirlestra og námskeiđ m.a. um sjálfsstyrkingu, samskipti foreldra og barna, hvernig sporna megi viđ sjálfsvígum, ţunglyndi og kvíđa. Einnig samskiptanámskeiđ fyrir starfsmenn sundlauga, íţróttamiđstöđva, íţróttaţjálfara, skólaliđa, stuđningsfulltrúa grunnskóla, sumarstarfsfólk íţróttafélaganna og leikvalla. Nú síđast hef ég veriđ međ fyrirlestur á skólafćrninámskeiđum grunnskólanna sem ćtluđ eru fyrir foreldra 6 ára barna. Í gangi eru jafnframt námskeiđ sérstaklega ćtluđ foreldrum unglinga. Frá ţví í byrjun árs 2008 hef ég ásamt fjögurra manna hópi annarra sérfrćđinga sinnt kennslu á námskeiđum vegna akstursbanns og sviptingar bráđabirgđaskírteinis. Námskeiđin eru haldin í Ökuskólanum Mjódd.
Ég sat í fyrsta sinn á ţingi í nóvember 2005 og mćlti ţá fyrir frumvarpi til laga um hćkkun ökuleyfisaldursins í 18 ár.
Ég hef á síđustu misserum birt fjölda greina um stjórnmál og ýmis sálfrćđileg. Flestar ţessara greina er hćgt ađ nálgast á vefsíđunni minni www.kolbrun.ws. Ţar má einnig finna pistla sem ég hef veriđ međ í Íslandi í Bítiđ á NFS og stutta pistla sem birtust í ţremur útgáfublöđum Króníkunnar og margt fleira. Á vorönn 2008 hef ég veriđ ţáttarstjórnandi ţáttanna Í Nćrveru Sálar á sjónvarpsstöđinni ÍNN. Nú hafa veriđ sýndir 8 ţćttir. Markmiđ ţáttanna er ađ skođa og fjalla um ýmis félags- og sálfrćđileg málefni. Sjá má ţćttina á www.inntv.is
Ég sat í stjórn Stéttarfélags sálfrćđinga á Íslandi (SSÍ) frá 1994-2003, var formađur ţess félags á árunum 1998-2000. Ég var ráđin sem sérlegur ráđgjafi stjórnar frá 2000 allt til ársins 2003. Á átta ára tímabili kom ég í ríkum mćli ađ kjarasamningsgerđ sálfrćđinga og hélt jafnframt samningatćkninámskeiđ fyrir heildarsamtök BHM og einstaka ađildarfélög.
Ég átti sćti í stjórn BHM árin 2001 til 2006.
Nálgast má skrif um sálfrćđileg málefni, stjórnmál og fleira á www.kolbrun.ws.










