Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Er gáttuð á ráðningu í starf umboðsmanns skuldara

_staabig-stashelgadttirrgjafastofa_jpg_620x1200_q95.jpg Runólfur Ágústsson hefur verið ráðinn Umboðsmaður skuldara.

Ég er alveg steinhissa á þessari ráðningu.

Hefði haldið að rétta manneskjan í þetta starf væri Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna.

Hvað hafði Runólfur umfram hana sem gerði hann hæfari??

 


Öryggið á oddinn. Er smokkurinn of dýr?

ungt_folk_a_skemmta_sermbl0062498.jpg Að smokkurinn sé of dýr og að það sé  ástæða aukinna tilfella m.a. Lekanda?

Þessa skýringu kaupi ég ekki. Í fréttum var fjallað um lokaverkefni tveggja sálfræðinema og var þetta m.a. ein af skýringum þeirra fyrir aukinni tíðni lekanda og annarra kynsjúkdóma.

Tveir smokkar kosta 500 krónur og 12 smokkar kosta 2000 krónur.

Ég held að ástæða þess að ungmenni noti ekki smokkinn í meiri mæli sé fyrst og fremst að þeim þykir það hallærislegt. Þetta er feimnismál. Það er ólíklegt að helsta ástæðan sé sú að þeir hafi ekki ráð á að kaupa smokka.


Ástæður fyrir því af hverju svo margir eru enn reiðir og pirraðir

  rei_ibilde.jpg Því er ekki að leyna að það er pirringur og reiði í samfélaginu sem tengist með einum eða öðrum hætti hruninu og afleiðingum þess. Einhverjir kunna að furða sig á því hve reiðin er enn djúpstæð og virðist ætla að endast lengi.  Í ljósi þess hversu mikið áfall dundi yfir þjóðina á haustdögum 2008 er hins vegar ekki að undra að fólk skuli enn vera tilfinningalega sundurtætt. Þannig mun það án efa verða um sinn eða í það minnsta þar til sérstökum saksóknara hefur tekist að grynnka á málafjöldanum á hans borði. Fólk verður ekki sátt fyrr en fundnar hafa verið ásættanlegar lausnir á allra erfiðustu skuldamálum sem  til var stofnað  á góðæristímanum. Meira um þetta hér


Mótmæli síðastliðna daga endurspegla ekki reiðina í þjóðfélaginu

Stöðugt er verið að vísa í almenningur þetta og almenningur hitt eins og allur almenningur sé einn einstaklingur. Þetta hefur verið sérstaklega áberandi í umræðunni um gengistryggðu lánin eftir dóm Hæstaréttar og viðbragða Seðlabanka og FME í því sambandi.

Það er kannski rétt að minna á að það tóku ekki allir gengistryggð bílalán.  Það eru ekki heldur allir með lán á bakinu. Það eru til einstaklingar og fjölskyldur sem hafa einmitt forðast eins og heitan eldinn að taka lán yfir höfuð. Þeir hafa heldur viljað vera án hluta eða látið sig vanta þá frekar en taka fyrir þeim lán. Þetta er fólkið sem jafnvel hefur unnið myrkrana á milli og lagt fyrir til að geta síðan síðar veitt sér einhvern munað.  Það er ekki óeðlilegt að þessi hópur sé einnig reiður enda kemur það í hlut þeirra sem skattgreiðenda að borga brúsann þegar upp er staðið.

Það eru margir reiðir hópar í samfélaginu nú en þeir eru ekki allir reiðir yfir sama hlutnum. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband