Kaldar kveđjur frá borginni

Dagforeldrar er stétt sem meirihlutinn er ađ verđa búinn ađ ganga endanlega frá löngu áđur en nćgt frambođ er af plássum á ungbarnaleikskólum. Úr stéttinni er stórflótti. Enn er talsverđur tími ţangađ til ungbarnaleikskólar verđa nógu margir til ađ geta annađ eftirspurn. Skynsamlegt hefđi ţví veriđ ef skóla- og frístundarráđ hefđi fundiđ leiđir í samvinnu viđ dagforeldra til ađ styrkja dagforeldrastéttina í ţađ minnsta ţangađ til ađ ungbarnaleikskólar eru orđnir raunhćfur valkostur fyrir foreldra í Reykjavík. Dagforeldrastéttin má ekki deyja út ţar sem ţađ munu alltaf verđa einhverjir foreldrar sem velja dagforeldra umfram ungbarnaleikskóla.

Stađan í dag er slćm. Foreldrar geta ekki veriđ öruggir međ ađ fá pláss fyrir barn sitt hjá dagforeldri óháđ ţví hvenćr á árinu barniđ fćđist. Ýmist vantar börn eđa vöntun er á dagforeldrum. Foreldrar eru í sífelldri spennu og starfsöryggi dagforeldra er alvarlega ógnađ.
Dagforeldrum hefur veriđ lofađ hinu og ţessu í gegnum tíđina sem ekki hefur veriđ efnt. 

Flokkur fólksins lagđi fram tillögu í borgarráđi 10. október 2019 um ađ fariđ yrđi í sérstakt átak til ađ tryggja starfsöryggi dagforeldra og ađ beitt yrđi til ţess öllum tiltćkum ađferđum og leiđum. Dagforeldrar hafa sjálfir veriđ duglegir ađ benda á lausnir en á ţćr hefur ekki veriđ hlustađ.

Biliđ óbrúađ

Biliđ sem átti ađ brúa milli dagforeldra og ungbarnaleikskóla hefur ekki veriđ brúađ. Á međan veriđ er ađ brúa ţetta margumrćdda bil ţarf ađ styđja viđ bakiđ á dagforeldrum ef stéttin á ekki ađ ţurrkast út. Dagforeldrar sjálfir hafa nefnt leigustyrk til ţeirra sem ađ leigja dýra gćsluvelli á vegum borgarinnar. Einnig ađ bjóđa dagforeldrum sem ađ ekki eru međ 4-5 börn viđbótarniđurgreiđslu til áramóta. Fleiri hugmyndir hafa veriđ lagđar á borđiđ s.s. ađ dagforeldrar fái ađstöđustyrkinn sem var samţykktur en síđan ákveđiđ ađ yrđi ekki greiddur í bráđ. Ţessi styrkur myndi hjálpa ţeim dagforeldrum sem ekki hafa náđ ađ fylla í plássin sín.

Haustiđ sem nú hefur kvatt hefur veriđ einstaklega erfitt fyrir dagforeldra. Ţeir vita ekki endilega hversu mörg börn eru hjá ţeim í nćsta mánuđi. Stundum bjóđa leikskólarnir pláss međ stuttum fyrirvara.  Dagforeldrar geta ţví stađiđ uppi um mánađamót međ einungis hluta af laununum sem ţeir gerđu ráđ fyrir ađ hafa. Ţeir dagforeldrar sem eru ekki međ laus pláss geta síđan ekki tekiđ viđ nýjum börnum fyrr en eldri börnin komast inn á leikskóla. Leikskólar Reykjavíkurborgar innrita börn yfirleitt einungis ađ hausti og ţví er mjög erfitt ađ fá laust pláss hjá dagforeldri eđa á ungbarnaleikskóla á öđrum tíma ársins en á haustin.

Kaldar kveđjur frá borginni

Ţađ hefur veriđ fariđ illa međ dagforeldrastéttina og ţađ bitnađ á foreldrum og börnum. Framkoma valdhafa borgarinn í garđ dagforeldra eru til skammar.  Margir dagforeldrar hafa áratuga starfsreynslu hjá borginni. Sveitarfélagiđ Reykjavík hefur brugđist ţessum hópi, stéttinni, foreldrum og börnum sem reiđa sig á ţjónustuna. Nágrannasveitarfélögin, flest hver, hafa stađiđ sig miklu betur ţegar kemur ađ ţví ađ hlúa ađ dagforeldrum.  Haustiđ hefur veriđ sérlega slćmt fyrir dagforeldrana og verđur voriđ slćmt fyrir foreldrana. Í vor munu margir foreldrar spyrja „hver á ađ passa barniđ mitt svo ég komist út ađ vinna"? 
Já hver á ađ passa börnin svo foreldrar komist til ađ vinna fyrir húsnćđislánum/leigu, fćđi og klćđi? Hvernig ćtlar borgin, skóla- og frístundarráđ ađ bregđast viđ ţegar stór hópur af börnum fćr ekki vistun og  foreldrar komast ekki til vinnu? Stórt er spurt en fátt er um svör
.


Bloggfćrslur 27. október 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband