Offituvandi á barnsaldri getur dregiđ dilk á eftir sér.

Sálfrćđilegt innlegg um offituvanda á barnsaldri.

Enda ţótt offituvandinn sé án efa erfiđur á öllum
aldursskeiđum má álykta sem svo ađ neikvćđ áhrif og afleiđingar hans séu alvarlegri hafi hann átt viđ offituvandamál ađ stríđa strax á unga aldri.
Á aldursskeiđinu 5-18 ára er einstaklingurinn ađ móta sína eigin sjálfsmynd. Hann skođar sjálfan sig,  ber sig saman viđ jafnaldrana og speglar sig í umhverfi sínu.  Hann lćrir fljótt hvađ ţađ er sem ţykir flott, er viđurkennt og eftirsóknarvert. Skilabođin sem einstaklingurinn fćr um sjálfan sig frá ţeim ađilum sem hann umgengst er stór áhrifaţáttur á mótun sjálfsmyndar hans.  Sá sem strax á barnsaldri á viđ offituvanda ađ stríđa er útsettari fyrir neikvćđum athugasemdum frá umhverfi  sínu, leyndum sem ljósum.  Hann er auk ţess í áhćttuhópi ţeirra sem lagđir eru í einelti; er strítt eđa látinn afskiptur.  Afleiđingarnar eru oftar en ekki brotin sjálfsmynd; óöryggi, tilfinningaleg vanlíđan og jafnvel ţunglyndi. Í slíkri vanlíđan eru félagsleg vandamál oft ekki fjarri. Eitt leiđir  af öđru og brátt, ef ekki er ađgáđ,  getur líf ţessa einstaklings veriđ undirlagt af erfiđleikum sem fylgt getur honum út ćvina.
Sökum ţess hversu offita er persónulegt mál hefur umrćđan veriđ viđkvćm. Sumir ţora ekki ađ nefna vandamáliđ ţví ţeir óttast ađ vera sćrandi eđa skapa óţćgilega nćrveru međ slíku tali.  Foreldrar sem hafa veriđ ađ horfa upp á börn sín ţyngjast óhóflega hafa stundum veigrađ sér viđ ađ rćđa vandamáliđ opinskátt af ótta viđ ađ auka enn frekar á vanlíđan ţeirra. Einnig óttast ţeir jafnvel ađ umrćđan kunni ađ hvetja barniđ til ađ grípa til öfgakenndra viđbragđa eins og ađ byrja ađ borđa óreglulega og jafnvel svelta sig.  Ţađ liggur hins vegar í augum uppi ađ offituvandinn verđur ekki leystur án ţess ađ horfst verđi fyrst í augu viđ hann, vandinn skilgreindur og lausnir rćddar ekki satt? Ţađ er eins međ ţetta og allt annađ sem telst vera vandamál, ţađ ţarf ađ rćđa ţađ!


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir

Já, ţetta er alvarlegt vandamál sem varđar líf og velferđ barna um alla framtíđ. En hvernig er ţađ, stendur foreldrum of ţungra barna til bođa einhver stuđningur líkt og tíđkast í ýmsum barnaverndarmálum? Ţegar fimm ára gamalt barn ţjáist af offitu ţá er vandinn auđvitađ skortur á nćringarráđgjöf og ađhaldi foreldranna - ţađ er ekki barniđ sem skapar vandann (ţó svo geti vissulega veriđ í tilfelli unglinga). Ég velti fyrir mér hvort ekki sé hćgt ađ taka á svona málum á forsendum barnaverndarmála hérlendis. Er ţađ kannski gert nú ţegar?

Bestu kveđjur.

Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 1.3.2007 kl. 12:49

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband