Breiðavíkurdrengir stefna ríkinu

Þessi frétt olli mér vonbrigðum. Undanfarnar vikur hefur íslenska ríkið verið að finna leiðir til að bæta Breiðavíkurdrengjunum upp þann hræðilega tíma sem margir þeirra áttu í Breiðavík. Unnið hefur verið að því að leita leiða með hvaða hætti hægt er að milda þennan skaða sem að sjálfsögðu aldrei er hægt að bæta að fullu frekar en aðra skelfilega reynslu sem sumir hafa orðið fyrir í bernsku. Íslenska ríkið hefur boðið bætur svo sem í formi sálfræðiaðiaðstoðar sem hluti þessa hóps hefur þegið að nýta sér. Nú hafa nokkrir menn sem þarna voru ákveðið að stefna íslenska ríkinu sem þýðir að „ríkið“ þarf að skipta um hlutverk og fara að verjast. Einhvern veginn virkar þetta á mig þannig að nú séum við ekki að vinna saman í þessu lengur heldur er e.t.v. langt og mikið deiluferli framundan þar sem deiluefnið fjallar um peninga. Ég spyr, hverjir eru hvatamennirnir að svona málaferlum? Eru það Breiðavíkurdrengirnir eða lögmenn þeirra?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæl Kolbrún. Ég veit kannski ekki hvort lögmenn þeirra séu að pressa á að þeir fari í mál. En það er vissulega sorglegt að heyra að þeir ætli í mál! Mér hefur það fundist svo að núverandi ríkisstjórn sé öll að vilja gerð að hjálpa þessum mönnum ásamt öðrum. En það sem er sorglegast og kann að vera að hafi litað skoðun þeirra og ætlan að fara í mál, er sú staðreynd að stjórnarandstaðan s.s. Jóhanna Sigurðardóttir hjá Samfylkingunni og fl. félagar hennar, ásamt nokkrum VG aðilum, hafa verið að ræða um peningagreiðslur til þessara aðila. Þetta skemmir og stuðar þá vinnu sem hafin er. Það finnst mér amk.!

Sveinn Hjörtur , 21.3.2007 kl. 09:59

2 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ég varð hissa þegar ég sá þessa frétt. Í stað þess að þiggja það sem í boði fyrir mennina, þá vilja þeir fara að stefna ríkinu, til hvers ?

Er þetta einhver gremja að þurfa að sparka í einhvern eftir það sem á gekk ? hvað eiga svo síðan peninga að gera fyrir þá ef þeir eiga að fá ókeypis aðstoð ? Er ekki aðal málið að vinna úr málunum, heldur en að stefna ríkinu ? Ég sé bara ekki alveg pointið í þessu......

Kveðja Inga

Inga Lára Helgadóttir, 21.3.2007 kl. 12:37

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þeir hafa ef til vill ekki áhuga á að bíða eftir að málið farið í enn eina nefndina.  Mér finnst lítið ganga og seint aðstoð við þetta blessað fólk.  Þetta er verið að vinna í, ætla að fara að gera, set málið í nefnd er alltaf dálítið tortryggilegt. 

Vonandi leysist þetta mál farssællega, en það hefur örugglega ekkert með pólitík að gera eða heldur fégræðgi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2007 kl. 13:48

4 Smámynd: halkatla

ég tek undir með Ásthildi, það er fyrir neðan allar hellur að hér sé verið að skjóta á þessa menn eftir allt sem ríkið gerði þeim

halkatla, 21.3.2007 kl. 14:02

5 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Ég er nú sammála. Finnst að þetta mál hefði átt að leysa yfir nokkrum kaffibollum, en ekki í dómsal, með lögfræðinga mjólkandi spenann.

Júlíus Sigurþórsson, 21.3.2007 kl. 14:53

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ríkið hefði átt að sjá sóma sinn í að bjóða þeim fébætur þó peningar geti að sjálfsögðu ekki bætt þann skaða sem gerður er.  Peningar geta þó að ákveðnu marki létt þeim lífið og mér finnst prinsippsins vegna gott mál að láta á þetta reyna.

Að kenna stjórnarandstöðunni um að mennirnir ætli í mál er svo paranoid að það er ekki einu sinni svaravert.

Þökk annars fyrir góða pistla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.3.2007 kl. 15:46

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þetta er hreinustu mistök, hingað til hefur þetta fólk haft ALLA þjóðina með sér, mig grunar að það sé fokið eða geri það um leið og þetta fréttist út. Ef þetta eru peningagráðugir lögfræðingar sem eru að hvetja skjólstæðinga sína útí þetta þyrfti einhvernvegin að koma skilaboðum til þessara aðila (þolendana) og opna augu þeirra. Kanski kemur pólitíkin eitthvað inn í þetta eins og einhver minnist á og er það nú ekki betra mál. nú væri gott fyrir þetta fólk að heyra í þjóðinni, heyra svona umtal eins og hér er í gnagi á þessari bloggsíðu þinni Kolbrún.

Sigfús Sigurþórsson., 21.3.2007 kl. 15:49

8 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Þetta er nátturulega svo sorglegt og viðkvæmt mál að það er erfitt að átta sig hvað er rétt og rangt í þessu máli.  Mér finnst samt eðlilegt að það sé mikil reiði hjá þessum mönnum og þeir eiga erfitt með að treysta ríkinu, því það var jú það sem brást þeim svona rosalega meðan þeir voru bara börn.  Það er líka eflaust meira í þessu máli sem við almenningur fáum aldrei að vita, því það sem fjölmiðlar birta er sjaldnast heilagur sannleikur.  Ég ætla nú að vona að þetta mál, að þessir menn ætli að leita sér réttar síns og fá dómskerfið til að skera úr hvað þeir eiga skilið að fá fyrir þessa hræðilegu meðferð, verði ekki til þess að fólk fari að kasta steinum og fordæmi þá enn frekar.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 21.3.2007 kl. 17:29

9 identicon

Þetta er áhugaverð umræða sem fer fram hér. En margt er það sem við höfum ekki fengið að vita enn um starfsemi þessara uppeldistofnana hins opinbera. Þeir skipta sjálfsagt hundruðum drengirnir, sem vistaðir voru um skemmri eða lengri tíma. Ég geri ráð fyrir því að langflestir þeirra beri alls engin sár á sálinni eftir dvölina og hafi komist ágætlega af í lífinu. En öðrum hefur síður gengið að fóta sig í lífinu, eins og gengur. Kann einhver reglu sem hægt væri að notast við til að greiða mönnum bætur? Hverjum á að greiða bætur? Öllum sem voru á þessum stöðum? Eða bara þeim sem telja sig hafa beðið skaða af dvölinni? En líf sumra sem þarna dvöldu er varðað endalausum mistökum, ætli að málssókn á hendur ríkinu sé ekki enn einn steinninn í þá vörðu?

Gústaf Níelsson (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 23:42

10 Smámynd: Ísdrottningin

Nú finnst mér eiga vel við að minna gamla erlenda máltækið um að dæma ekki fyrr en 7 mílur hafa verið gengnar í skóm viðkomandi.

Við höfum hvorki þekkingu né reynslu til að meta réttmæti slíkrar stefnu. 

Ísdrottningin, 25.3.2007 kl. 01:30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband