Hvað einkennir góðan yfirmann?

Í síðustu tveimur greinum hefur verið fjallað um vanhæfa yfirmenn á sviði samskiptamála og einnig yfirmenn sem leggja starfsmenn sína í einelti. Sá sem misnotar vald sitt í yfirmannastöðu skortir án efa leiðtogahæfileika. Hann er heldur ekki alltaf heiðarlegur og réttsýnn. Hann baktalar jafnvel starfsfólk og leggur á ráðin baksviðs. Hann á það til að halda upplýsingum frá starfsfólki. Þessi yfirmaður lætur sér líðan starfsfólks oft í léttu rúmi liggja. Hann hefur sveiflukenndan stjórnunarstíl og er óútreiknanlegur í skapi. 

En hvað er það þá sem einkennir góðan yfirmann? Góður yfirmaður gerir að sjálfsögðu kröfur til starfsmanna sinna um að skila góðri vinnu og að þeir hafi hagsmuni vinnustaðarins í heiðri í hvívetna. Sé yfirmaðurinn góður leiðtogi langar starfsfólki öllu jafnan að leggja sig fram, sjálfs síns vegna og vinnustaðarins. Metnaður yfirmannsins ætti að smitast auðveldlega yfir til starfsmannanna, líði þeim vel í vinnunni.

Farsæll yfirmaður lætur sig nærumhverfið varða. Hann heldur starfsfólkinu upplýstu um nauðsynleg vinnutengd atriði og gefur skýr skilaboð um samskiptareglur. Stjórnunarstíll hans er gegnsær og fyrirsjáanlegur.

Hann er næmur á líðan fólks og hugmyndaríkur þegar kemur að lausn ágreiningsmála. Góður yfirmaður veit að öll vandamál leysast ekki af sjálfu sér. Hann hefur þess vegna tiltæka viðbragðsáætlun og skapar lausnarfarveg fyrir vandamál sem upp kunna að koma. Góður yfirmaður hvetur starfsfólkið til að gera skaðvalda óvirka, séu þeir á staðnum og upplýsa um neikvæða hegðun, verði hennar vart. Hann ber heilsu og hag allra á staðnum fyrir brjósti sér. Yfirmaður sem hefur þessa þætti í heiðri er líklegur til að vera í heilbrigðu og jákvæðu sambandi við starfsfólkið.

Jákvæðum staðarbrag er m.a. viðhaldið með því að skapa vettvang fyrir umræðu og hvatningu. Ræða þarf um hvernig almenn starfsánægja sé í þágu allra. Umræðan ætti ekki að vera á neinn hátt háð því að kvörtun eða eineltismál sé í ferli. Stjórnendur vinnustaða hafa margar leiðir til að mynda og viðhalda góðum tengslum. Nefna má hið hefðbundna:

  • Starfsmannaviðtöl
  • Skýrar starfslýsingar
  • Starfsánægjukannanir
  • Reglulegir starfsmannafundir

Það þarf ekki að kosta mikið fé að kanna líðan starfsfólks. Fáeinar spurningar geta gefið upplýsingar um staðarmenninguna og ríkjandi andrúmsloft. Helst er að marka svörin séu þau nafnlaus:

  • Hvernig líður þér með yfirmanninn?
  • Kostir og gallar yfirmannsins?
  • Hvernig líður þér í vinnunni?
  • Hvaða þætti ertu ánægð(ur) með á vinnustaðnum?
  • Hvað er það helst sem þú myndir vilja að breyttist á vinnustaðnum?

Öll erum við breysk og áður en ævinni lýkur má næstum fullyrða að einhvern tímann á lífsleiðinni sýnum við neikvæða hegðun og framkomu. Það er mikilvægt þegar talað er um neikvæða framkomu fólks að gera alltaf ráð fyrir að það sé að þroskast og læra nýja hluti og geti þar að leiðandi bætt sig á þessu sviði sem öðru. Það krefst vissulega innsæis að geta horft á sjálfan sig með gagnrýnum hætti og axlað ábyrgð á eigin hegðun. Yfirmenn, eins og allir aðrir verða að geta sett sig í spor starfsmanna sinna. Einnig er gott viðmið að spyrja sig hvernig maður vill að aðrir komi fram við sig. Sé þeim þetta gefið, geta þeir tekið meðvitaða ákvörðun um að breyta framkomu sinni, taka upp nýjan samskiptastíl, þar með talinn nýjan og bættan stjórnunarstíl.

Greinin er birt í Fréttablaðinu 24. júlí

www.kolbrunbaldurs.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband