Áhrif skilnaðar á börn

Tímarnir hafa breyst. Í grunnskóla eða barnaskóla eins og það hét minnist ég þess að hafa verið eina skilnaðarbarnið í bekknum. Gagnvart skilnaði foreldra var í þá daga takmarkaður skilningur.

crying child

Hvernig líður skilnaðarbörnum í dag?

Skilnaður er aldrei auðveldur. Skilnaður hefur alltaf einhver áhrif á börnin jafnvel þótt reynt sé að halda þeim sem mest utan við hann. Sú breyting sem á sér stað við skilnað þ.e. að foreldrar flytja í sundur hefur oftast mikil áhrif á börnin. Þau eru ekki lengur að vakna á morgnana með báða foreldra sína á heimilinu. Hversu mikil og djúpstæð áhrif fer eftir ótal breytum svo sem aldri, þroska og tengsl barnsins við foreldra sína. 

Margt hefur breyst á 50 árum.  Án þess að hafa einhverjar rannsóknarniðurstöður til að styðjast við, þá vil ég engu að síður fullyrða að í sumum tilvikum er hægt að finna bekk þar sem jafnvel helmingur barnanna eiga foreldrar sem ekki búa saman.  

Samhliða þeirri staðreynd að skilnuðum hefur fjölgað hefur viðhorf til skilnaðar almennt séð breyst. Núna eru foreldrar og þeir sem sinna börnum hvort heldur í skóla eða í tómstundum farin að skilja betur áhrif skilnaðar á börn og mögulegar afleiðinga hans á sálarlíf barnanna.

Góðir foreldrar sem setja hagsmuni barna sinna í forgang reyna þess vegna að vanda sig og leitast við sem mest þeir geta að lágmarka og milda neikvæðustu þættina sem skilnaðinum fylgir.

Undir hvaða kringumstæðum er skaðsemin mest? 

Alvarlegar og langvinnar afleiðingar skilnaðar á börnin eru helst í þeim tilvikum þar sem skilnaðurinn hefur haft langan og átakamikinn aðdraganda og þar sem börnin hafa jafnvel orðið á milli í hatrömmum deilum foreldra sinna. Ekki bætir úr skák ef foreldrarnir halda áfram eftir skilnaðinn að deila og skammast út í hvort annað fyrir framan börnin og börnin verða jafnvel bitbein þeirra.

Börnunum í þessum tilfellum finnst jafnvel stundum skilnaður foreldra sinna vera þeim að kenna. Vanlíðan þeirra er oft mikil, þau upplifa óöryggi, vonleysi og sorg. Barni sem líður með þessum hætti á erfitt með að gleðjast, hlakka til og slaka á í félagslegum samskiptum. Sjálfsmat þeirra býður hnekki og oft reyna þau að láta sig "hverfa", í það minnsta, láta lítið fyrir sér fara. Sum hætta að bjóða vinum sínum heim því þau vilja ekki að neinn viti um skilnaðinn.

Þeir sem eru að íhuga skilnað eða standa e.t.v. í erfiðum og sársaukafullum skilnaði verða að huga sérstaklega að andlegri líðan barna sinna í skilnaðarferlinu. Þeir verða að gæta þess að erfiðar tilfinningar, reiði og e.t.v. biturleiki þeirra bitni undir engum kringumstæðum á börnunum.

Að setja sig í spor barna sinna undir þessum kringumstæðum ætti ekki að vera erfitt fyrir neitt foreldri. Prófa í smástund að ímynda sér að vera barnið sitt sem er að reyna að skilja af hverju mamma og pabbi vilja ekki vera lengur saman og af hverju þau þurfa að vera svona reið við hvort annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband