Dýraníð, finna þarf gerendur dýraníðs og hjálpa þeim að stöðva atferlið

Það er fátt sem veldur manni eins mikilli sorg og harmi og fréttir af dýraníði. Oft er ekkert vitað um hvort þarna sé á ferðinni ungmenni eða fullorðinn einstaklingur. Við fréttir af þessu tagi velta margir án efa fyrir sér hvernig andleg líðan þess sem þetta gerir sé? Maður fer að leita orsaka og einhverjir spyrja án efa hvort gerandinn hafi e.t.v. verið meiddur sjálfur, er hann jafnvel haldinn miklum sársauka, reiði og biturleika sem hann nærir með því að pynta og drepa dýr?
Hver svo sem orsökin er, virðist ljóst að sá sem svona gerir er ekki heill.
Ég hef sem sálfræðingur verið spurð alls konar spurningar í þessu sambandi. Sem dæmi er spurt, getur verið að sá sem þetta gerir sé bara hreinlega siðblindur og ill manneskja?
Önnur algeng spurning í þessu sambandi er hvort þetta sé ekki allt sjónvarpinu og tölvuleikjunum að kenna? Þessum spurningum er erfitt að svara enda líklegt að orskir séu flóknari en svo að hægt sé að kenna einhverju einu um.
 
Ef skyldi vera um ungmenni að ræða er oft álitið að uppeldinu sé um að kenna eða er viðkomandi haldinn einhverri röskun?
 
Í mörgum tilfellum vitum við aldrei hver var að verki, ungmenni eða fullorðinn. Eitt teljum við víst að sá sem svona gerir hefur ekki mikla samkennd, alla vega ekki með dýrum. Sé um að ræða fleiri en einn að verki koma spurningar um áhrifagirni. Sé um að ræða hóp má spyrja hvort hér sé um hópþrýsting að ræða? Getur einstaklingur verið svo áhrifagjarnt að ef hvattur til að taka þátt í verknaði sem þessum láti hann tilleiðast?
Svona má lengi spekúlera og oft fást engin svör. Eftir situr ömurlegur veruleiki, einhver ákvað að meiða og drepa dýr sem enga vörn eða björg gat sér veitt. Gerandinn finnur e.t.v. ekki tilfinningu eftirsjár akkúrat núna en síðar, einn daginn í lífi hans er líklegt að samviskan kalli. Mikið langar mig til að ná í þennan geranda/gerendur til að hjálpa honum/þeim að stöðva þetta hræðilega atferli!
 
 
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband