Opnunartíminn ekki vandamálið

Að stytta opnunartíma skemmtistaðanna í miðbænum leysir ekki þann vanda sem okkur er tíðrætt um þessa dagana. Ef það yrði niðurstaðan myndi ég telja að vandamálið myndi fremur aukast.  Eftir lokun myndu þeir gestir sem ekki væru tilbúnir að fara heim eða ekki komast heim því erfitt gæti reynst að fá leigubíla einfaldlega fylla götur miðbæjarins. Því meiri fjöldi af fólki í misjöfnu ástandi því meiri líkur á neikvæðum uppákomum sér í lagi ef hvergi bólar á lögreglu.  Að stytta opnunartímann er þess vegna ekki lausnin.

Meginlausnin felst í sýnileika laganna varða. Nýr lögreglustjóri lagði á það áherslu þegar hann tók við embætti að auka bæri sýnileika lögreglu.  Það virðist ekki hafa orðið. Þvert á móti hefur það komið fram að lögreglan röltir helst ekki um bæinn að næturlagi um helgar.

Þeir sem eru mest til trafala eru ekki börn og unglingar heldur fullorðið fólk sem höndlar illa áfengi og er jafnvel í vímuefnaneyslu að auki. Meðan verið er að ná tökum á þessum vanda þarf að efla löggæslu. Ef til vill er hægt síðar meir að draga úr henni aftur en núna eins og ástandið hefur verið í sumar er þetta sú leið sem líklegust er til árangurs.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er alveg sammála þér. Kolbrún.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.8.2007 kl. 11:58

2 identicon

Ég var að koma úr vikuferð til Rómar. Lögreglan var mjög sýnileg í miðborginni og ég varð ekki var við glæpi af nokkru tagi eða lögreglan ryki allt í einu upp til handa og fóta til að elta einhverja glæpona.

Reyndar sá ég ekki einn einasta árekstur alla ferðina og enga skemmda bíla. Þó er umferðin miklu meiri og flestar göturnar mun þrengri í miðborg Rómar en Reykjavík. 

Steini Briem (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 12:10

3 Smámynd: Ómar Örn Hauksson

Sammála. Ástæðan fyrir því að þeir lengdu opnunartíma var til þess að losna við fjöldan sem safnaðist saman í miðbænum eftir lokun.

Þetta ástand er að stórum hulta til að kenna reykingabanninu sem var sett á án þess að vinna með lögreglunni.

Danir gerðu annsi skemmtilegan bar þar sem nánast allt húsnæðið var reykingarsvæði en barborðið var lokað inn í litlu svæðið, bara nokkra fermetra, þar sem reykingar voru bannaðar.

Ómar Örn Hauksson, 14.8.2007 kl. 16:05

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála þessu Kolbrún, kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 14.8.2007 kl. 16:23

5 identicon

Spurning hvort að neysla á hörðum efnum tengist því að endast lengur niðri í bæ?
Set spurningamerki um hvort reykingarbannið komi þessu eitthvað við þar sem ástandið var alveg slæmt fyrir bannið.
Hef ekki heyrt talað um tengingu milli aukins ofbeldis og aukinnar steraneislu í kjölfar aukinnar þráhyggju um betra útlit (Spuring hvort bita eigi handahófs lyfjaprófana í líkamsræktum).
Aukin sýnileg löggæsla er eitt af lykilatriðunum.

Atli (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 18:46

6 Smámynd: krossgata

Makalaust hvað við íslendingar erum tilbúin að verja stórundarlega drykkjusiði okkar fram í rauðan dauðann og viðhalda túrkenndri drykkjunni sem lengst.  Kannski bara kominn tími til að opna augun, fullorðnast aðeins og sjá að það að kútveltast útúrdrukkinn í 3 daga er ekki smart og fara að taka um aðra drykkjusiði.

krossgata, 14.8.2007 kl. 19:02

7 Smámynd: Ívar Jón Arnarson

Lögreglan þarf að vera miklu sýnilegri í miðbænum. Til þess þarf eflaust að fjölga lögreglumönnum, en það er nú ekki svo auðvelt í þessu góðæri sem nú varir. Hæfir menn einfaldlega fara ekki í störf eins og löggæslu í sama mæli og þegar harðar er í ári.

Til að þetta megi lagast, þarf að hækka grunnlaun almennra lögreglumanna talsvert, auk þess sem þarf að minnka til muna það vinnuálag sem er á þeim. Það getur varla talist eðlilegt að maður sem á frí sé avinnuskyldur.

Ívar Jón Arnarson, 14.8.2007 kl. 19:08

8 Smámynd: Ívar Jón Arnarson

Þarna átti ég auðvitað við að vera "aukavinnuskyldur"

 Smá hiti í kallinum :)

Ívar Jón Arnarson, 14.8.2007 kl. 19:09

9 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

Sammála þér Kolbrún...

Bjarney Hallgrímsdóttir, 14.8.2007 kl. 20:20

10 Smámynd: Halla Rut

Gæti ekki verið meira sammála þér og hreint skil ekki þegar fólk telur að styttri opnunartími leysi vandann. Það sem ég vil hinsvegar bæta við og benda á er að ef opnunartími verður styttur í fyrra horf koma "heimilispartýin" aftur en er fólk búið að gleyma hvernig þetta var. Lögreglan var keyrandi milli heimila alla nóttina til að stöðva nætur partý sem ollu miklum ófriði fyrir nágranna sem og settu oft þá sem voru að halda partýið í mikinn vanda þegar skemmtunin fór úr böndunum.  

Ívar, ég vil líka benda þér á að fyrir nokkrum misserum voru laun lögreglumanna hækkuð verulega og eru laun þeirra bara nokkuð góð í dag. 

Halla Rut , 14.8.2007 kl. 23:07

11 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Þegar opnunartíminn var lengdur hérna um árið var hugsunin einmitt sú að koma í veg fyrir að allir þyrptust út á götu á sama tíma. Við breytinguna átti fólkið að fara út af stöðunum á misjöfnum tímum og þar með að eiga greiðari aðgang að leigubílum. 

Það sem gerðist hins vegar er að dreifingin hefur orðið en ekki samt eins og vonast var til en leigubílavandinn er enn til staðar. Margir fullyrða að neysla örvandi efna hafi snaraukist þegar opnunartíminn var lengdur.

Margir leigubílstjórar segjast alls ekki treysta  sér að aka síðari hluta nætur vegna þess að þá sé fólk orðið svo illa drukkið að þeim geti stafað hætta af. 

Af einhverjum undarlegum ástæðum eru leyfi til leigubílaaksturs skömmtuð í takmörkuðum mæli þannig að þeir sem vildu bætast í þann hóp geta það ekki. 

Það er svo aftur umhugsunarefni hvers vegna fólk þarf að drekka svona oft og svona mikið í hvert sinn. Andrúmsloftið er stundum eins og hver sé að verða síðastur að "skemmta" sér áður en heimurinn líður undir lok. 

Þóra Guðmundsdóttir, 15.8.2007 kl. 22:40

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Tek heilshugar undir þetta.

Marta B Helgadóttir, 16.8.2007 kl. 01:07

13 identicon

Það hefur engin maður, síst ekki unglingar, efni á að skemmta sér á íslandi. 700 kall fyrir einn bjór! 1100 kall fyrir vodka í kók! þetta er náttúrulega rugl.. Fólk (og sérstaklega unglingar) djúsa í heimahúsum til klukkan eitt eftir miðnætti, en þá haugast allir skyndilega niður í bæ. Þegar þangað er komið eru menn frekar drukknir og ruglaðir, rjúka inn á staðinn sinn, kaupa sér einn gráann fyrir þúsundkall, hoppa á dansgólfinu , slást aðeins og reyna að finna sér rekkjunaut fyrir kvöldið. Svo er fólki hent út klukkan ca. 4. og þá er það gefið mál að einn blindfullur vitleysingur ræðst á annan blindfullan vitleysing og báðir lenda á slysó.

En af hverju kostar 1 bjór 200 kall í ríkinu en 700 inni á stað? Svariði því helvítis veitinganasistar!

Ágúst Guðmundsson (IP-tala skráð) 19.8.2007 kl. 14:30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband