Félagiđ París bíđur ţá sem búa einir/eru einhleypir velkomna

Hvort sem ţú býrđ ein(n) af eigin vali, í kjölfar skilnađar eđa makamissis og langar til ađ mynda ný vinakynni og tengsl, átt ţú ţess kost ađ ganga í félagiđ París.

Ţetta félag hefur starfađ í fimm ár og hefur ţađ ađ markmiđi ađ skapa skemmtilegan vettvang í kringum áhugamál ţeirra sem eru einir eins og segir í dagbók Morgunblađsins frá ţví um helgina.

Starfiđ byggir á hópastarfi.  Um er ađ rćđa bíóhóp, spjallhóp, gönguhóp, út ađ borđa hóp, menningarhóp og ferđahóp svo fátt eitt sé nefnt.

Formađur félagsins, Sigrún Höskuldsdóttir leggur áherslu á ađ taka vel á móti nýjum félagsmönnum og segir ađ ţađ hafi sýnt sig ađ mikil ţörf sé fyrir vettvang af  ţessu tagi.

Útí samfélaginu er án efa fullt af fólki sem langar til ađ mynda ný kynni en hefur ekki löngun til ađ sćkja skemmtistađi í ţví skyni.  Félagiđ París er sannarlega fýsilegur valkostur fyrir ţennan hóp til ađ hitta annađ fólk og eiga međ ţví gefandi samverustundir.

Á slóđinni www.paris.is má finna upplýsingar um hiđ fjölbreytilega hópastarf. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Takk fyrir ađ rifja ţetta upp.

Ábyggilega gott fyrir mig; félagslega sinnađan einfara sem getur og/eđa vill ekki vera einn!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 11.3.2008 kl. 22:46

2 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Vertu ávalt velkominn í bloggvinahópinn Ólafur.

Kolbrún Baldursdóttir, 13.3.2008 kl. 13:20

3 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Góđ hugmynd. Ekki gaman ef mađur vćri einn ađ vera á skemmtistöđum eđa öđru slíku.  Mikiđ gáfulegra ađ hittast svona. 

Ásdís Sigurđardóttir, 13.3.2008 kl. 15:45

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband