Kolsýrlingseitrun úr gasofni. Tímbćrt ađ byrgja ţennan eiturbrunn í eitt skipti fyrir öll

Á fáum árum hafa 6 manns látist í tveimur slysum af völdum kolsýrlingseitrunar frá gasofni.  Slysin áttu bćđi sér stađ í veiđikofum ţar sem fólkiđ kveikti upp í litlum gasofni til kyndingar. Eldur eyđir súrefni og viđ skort á súrefni myndast eiturlofttegundin kolsýrlingur.  Sé búiđ ađ kveikja upp í gasofni skiptir öllu ađ súrefni eigi greiđa leiđ inn í rýmiđ svo eiturlofttegund nái ekki ađ myndast. Annars ţarf vart ađ spyrja ađ leikslokum.

Um nákvćman ađdraganda ţessara slysa veit ég í sjálfu sér ekki meira en ţađ sem fram kemur í fréttum.  Gera má ţví skóna ađ fólkiđ komi inn eftir langan dag ţar sem ţađ hefur veriđ viđ veiđar. Kalt, ţreytt og slćpt kveikir ţađ upp í ofninum. Í ţessum tilvikum hefur komiđ í ljós ađ loftrćsting var ábótavant. Fólkiđ hefur vćntanlega fljótt orđiđ fyrir einhverjum eituráhrifum. Áhrif eitursins á heilann veldur dómgreindarleysi og hugsun hćttir ađ vera skýr.  Jafnvel ţótt fólkiđ sé međvitađ um hćttuna og ćtli sér ađ opna glugga ţá verđa eituráhrifin ţess valdandi ađ slen og svefn ná ađ taka völdin og fólkiđ einfaldlega lognast út af. 

Svona hörmungarslys hlýtur ađ vera hćgt ađ koma í veg fyrir međ einhverjum ábyggilegum og varanlegum hćtti. Helst dettur mér í hug ađ fćrt verđi í lög ađ ţeir sem eiga kofa međ gasofnum beri ábyrgđ á ţví ađ loftrćsting sé alltaf nćgjanleg t.d. ađ allir kofar hafi reykrör (stromp). Skilti eđa ađrar viđvaranir nćgja ekki til ađ koma í veg fyrir slys sem ţessi enda ţekkingarskortur kannski sjaldnast orsökin. 

Ég vil hvetja eigendur veiđikofa um allt land og ađra sem ađ ţessum málum standa beint eđa óbeint ađ byrgja ţennan eiturbrunn áđur en fleiri falla ofan í  hann.   


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Tek undir ţetta međ ţér.  Ţarna ţarf ađ gera bragarbót á.

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 6.4.2008 kl. 13:53

2 identicon

Já ţyrfti ađ setja lög um ábyrga loftrćstingu sem yrđi í notkun á íverutíma í svona ađstöđu upp til fjalla.

Ása (IP-tala skráđ) 6.4.2008 kl. 15:32

3 identicon

Ţarf ekki ađ vera annađ en loftrćstiop í líkingu viđ eins og í fjölbýlishúsum.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráđ) 6.4.2008 kl. 17:31

4 identicon

Ţađ ţarf almenna frćđslu um ţetta, fólk er ekki nógu vel upplýst hvađ skeđur flestir halda ađ ţađ slökkni á gasinu og ţađ sé ţađ gasiđ sem valdi eitruninni ţegar ţađ flćđir en ţađ er ekki rétt, heldur sveltur eldurinn af súrefni og viđ ţađ myndast ţessi banvćna lofttegund og gerir útslagiđ á mjög snörpum tíma, öflum okkur betri upplýsinga og komum ţeim til skila.

Viđar Jónsson (IP-tala skráđ) 6.4.2008 kl. 21:40

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Tek undir međ ţér.

En lestu blogg mitt;uppreisn;

Hólmdís Hjartardóttir, 7.4.2008 kl. 02:55

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband