Að raða eftir litum og notagildi tjöruhreinsins

Ég var ánægð að sjá að fjallað er um kosti þess að raða eftir litum í fataskápinn eins og sjá má í Fréttablaðinu í dag Regnbogi í fataskápnum.  Þetta flokkunarkerfi er afar handhægt og er til þess fallið að maður er tiltölulega fljótur að átta sig á, í fyrsta lagi hvað er í skápnum og í öðru lagi flýtir röðunarkerfi sem þetta fyrir vali og hugmyndum um samsetningu fata sem eru í skápnum.

Þar sem efni þessarar færslu er ekki dæmigert fyrir færslur á bloggsíðunni langar mig að láta fylgja  með eitt gott húsráð.

Til að ná slæmum bletti úr flík eða krónískri svitalykt þá felst góð lausn í því að úða á blettinn MAX EXTRA Tjöru- og Olíuhreinsir og setja svo flíkina í þvottavélina. Gildir einu hvernig flíkin er á litin. Þetta er algert töfraefni og má nota við margt annað en að hreinsa tjöru og olíu. Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sniðugt, ég hef í nokkur ár raðað eftir litum í fataskápinn og það virkar bara vel! ..  Takk fyrir húsráðið.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.5.2008 kl. 17:35

2 Smámynd: Hafdís Lilja Pétursdóttir

Takk fyrir þetta frábæra ráð gegn svitalykt.

Njóttu dagsins

Hafdís Lilja Pétursdóttir, 27.5.2008 kl. 06:11

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir góð ráð Kolbrún mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.5.2008 kl. 10:27

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband