Umboðsmaður barna heimsæki skóla reglulega

Hlutverk umboðsmanns barna er víðtækt og því gerð góð skil á heimasíðu hans sem er að öllu leyti til fyrirmyndar. Í embætti umboðsmanns barna hefur ávallt verið ráðinn lögfræðingur. Embættið hefur verið að þróast og vafalaust tekið hvað mestum breytingum þegar skipti hafa orðið á umboðsmanni. Nýir siðir og venjur koma með nýjum embættismönnum enda þótt lagaramminn hafi e.t.v. haldist nokkuð óbreyttur frá upphafi.

Lagaumhverfið sem lýtur að börnum er grundvallaratriði sérhvers samfélags sem vill gæta þess að hagsmunir þeirra séu ávallt hafðir í fyrirrúmi. Þess vegna er það forgangsatriði að fylgst sé gaumgæfilega með að þjóðréttarsamningar sem snerta réttindi og velferð barna og Ísland er aðili að séu virtir og að íslensk lög og reglugerðir sem lúta að börnum og velferð þeirra séu aðlöguð jafnóðum og aðstæður eða samfélagsumhverfið gera um það kröfur.

En það eru önnur verkefni sem ekki er síður mikilvægt að embætti umboðsmanns barna sinni af alúð. Hér er átt við að umboðsmaður barna geri sér sérstaklega far um að vera í beinum tengslum við börnin í samfélaginu. Leiðin að börnunum er að umboðsmaðurinn byggi sér brú yfir til þeirra með því að heimsækja leikskóla og skóla landsins. Tilgangur heimsóknanna væri í raun tvíþættur: að umboðsmaðurinn kynni sig og embættið og að hann kynnist börnunum og raunheimi þeirra.

Að sækja börnin heim í skóla þeirra er ein áhrifaríkasta leiðin ef umboðsmaðurinn hefur áhuga á að skynja, upplifa og kynnast samfélagi barna og unglinga. Það er trú mín að börnin sjálf munu hafa bæði gagn og gaman af slíkri heimsókn. Á Íslandi hefur verið borin ákveðin virðing fyrir mikilvægum embættum og ef heimsóknar er að vænta frá embættismönnum finna börnin til sín og hlakka til. Þetta hefur margsinnis sýnt sig þegar t.d. forseti Íslands vísiterar eða borgarstjóri.

Umboðsmaður barna hefur með þessum hætti gullið tækifæri til að ræða við börnin um fjölmarga hluti sem lúta að þeim og umhverfi þeirra t.d. um jákvæð samskipti og hversu áríðandi það er þau beri virðingu fyrir hvert öðru. Góð vísa sem þessi er aldrei of oft kveðin.

Ávinninginn af slíkum heimsóknum umboðsmanns barna er e.t.v. ekki hægt að mæla með beinum hætti. En gera má ráð fyrir að því fleiri aðilar frá ólíkum stofnunum samfélagsins sem bætast í hóp þeirra sem miðla nauðsynlegum skilaboðum til barna auki líkur þess að þau meðtaki boðskapinn.

Ég vil í þessari grein hvetja umboðsmann barna að gera sér far um að komast í beina tengingu við börnin í landinu, hlusta með eigin eyrum á hvað þau hafa að segja og á sama tíma ræða sérstaklega við þau um mikilvægi þess að koma vel fram hvert við annað hvort heldur þau eru í skólanum, í hverfinu þar sem þau búa eða á Veraldarvefnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég fagna þessum áfanga. -Hugsanlega gæti lögfræðingur frá Saksóknara ríkisins verið hluti af Sérsveitinni. Sérsveitin er í raun áfallateymi, sem þarf að bregðast við samdægurs, eins og þegar snjóflóð fellur á landsbyggðina. þá er ríkisstjórnin ræst út, björgunarsveitir á lofti, láði og legi, heilsbrigðisstéttir eru settar í viðbragðsstöðu, Rauði Kross Íslands setur í gang viðbragðsáætlun, og lögreglan er við öllu búin, prestar eru tilbúnir til að sinna sálgæslu, landsmenn liggja á bæn, óháð trúarbrögðum, milli vonar og ótta að megi bjarga mannslífum. -Ég vona að landsmenn allir sýni sömu virðingu gagnvart þolendum eineltis, bolunar og kynferðislegs áreitis, hvort heldur er í skólum landsins eða á vinnustöðum. – Spurningin er hvaða stöðu, tekur þú í eineltishringnum? Tekur þú ábyrgð og afstöðu gegn einelti, bolun og kynferðislegu áreiti? Hvernig er þinn siðferðiskompás stilltur? Viltu taka þátt í að stilla mennskuna í æðra veldi?

Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir (IP-tala skráð) 16.5.2009 kl. 19:20

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband