Líði barni illa í skólanum þarf að finna hvað veldur

Að afnema skólaskyldu yrði brjálaði enda klárlega ekki á döfinni. Það væri  hugmynd sem er ekki hugsuð út frá hagsmunum barna.

Líði barni illa í skólanum þarf að taka það háalvarlega, skoða í grunninn hvað veldur og hætta ekki fyrr en búið er að bæta úr þannig að barnið geti hlakkað til að koma í skólann og geti notið þess að vera þar.


Skólinn er ekki bara mikilvægur vegna námsefnisins. Það er svo margt annað sem börnin eru að fá út úr skólasókn en að læra á bókina eins og við vitum.  Að taka þennan rétt frá þeim væri mannréttindabrot.

Skil þó alveg þann punkt sem Margrét Pála er að nefna með mótiveringu foreldranna og að þeir sjái þetta ekki vera kvöð fyrir barnið sitt sem e.t.v. líður illa í skólanum.

Öll börn eiga rétt á því að líða vel í skólanum sínum. Góð samvinna við foreldra er lykilatriði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sandy

Góðan dag Kolbrún! Mikið get ég verið þér sammála, það má aldeilis ekki hrófla við skólaskyldu barna því þá mundu ansi margir hellast úr lestinni.

Sandy, 15.9.2011 kl. 09:09

2 Smámynd: Vendetta

Það ætti víst frekar að afnema Hjallastefnuna.

Vendetta, 15.9.2011 kl. 11:45

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já sammála þér Kolbrún. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.9.2011 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband