Borgarbúar eiga fleiri málsvara nú

Ţađ gengur ekki allt illa í borgarstjórn eins og fram kemur í pistli Björn Jóns Bragasonar og fjallađ er um á dv.is. Flokkur fólksins samţykkir og styđur mál meirihlutans sem falla innan stefnu flokksins og lúta ađ ţví ađ auka og bćta ţjónustu viđ fólkiđ. Sjálfstćđismenn voru í fyrra, í borgarstjórn međ áskorun til Alţingis um endurskođun fjölda borgarfulltrúa og ţá lagđi ég fram ţessa bókun:

Fjölgun borgarfulltrúa var tímabćr og af hinu góđa. Ótalmargt hefur breyst til hins betra. Minnihlutinn er fjölbreyttari og fleiri sjónarmiđ komast ađ. Eldra fyrirkomulagiđ var gallađ og kostnađarsamt. Sem dćmi, fólk sem var jafnvel lítt tengt pólitíkinni tók sćti í hinum ýmsu nefndum ţví borgarfulltrúar gátu ekki annađ ţeirri vinnu. Núna sjá kjörnir fulltrúar um mestu vinnuna. Ţađ er lýđrćđislegra en vissulega óhemju álag fyrir litla flokka. Kosturinn viđ fjölgunina er ađ nú eru fleiri mál, fyrirspurnir, tillögur, dýpri og lengri umrćđa sem er allt af hinu góđa. Öflugur minnihluti getur stuđlađ ađ bćttum rekstri í borginni, aukins ađhalds og gegnsći. Borgarbúar eiga fleiri málsvara nú. Fleiri eyru hlusta og međtaka skilabođ frá borgarbúum. Ef borgarfulltrúar eru fáir falla mörg greidd atkvćđi dauđ sem kemur verst niđur á litlum flokkum. Stórir flokkar nýta atkvćđi sín best viđ ţessar ađstćđur og ţví kom ţessi tillaga Sjálfstćđismanna ekki á óvart.

Má nefna ađ sá flokkur hélt oft meirihluta í Reykjavík fyrr á árum međ minnihluta atkvćđa. Ţađ eru minni líkur á slíku ţegar borgarfulltrúar eru 23 en ekki 15. Álit Alţingis er ađ borgarfulltrúar í Reykjavík eigi ađ vera 23-31. Lćgsti mögulegi borgarfulltrúafjöldi er í Reykjavík eins og er.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband