Hvernig líður þingmönnum á vinnustaðnum Alþingi?

naerverusalar_kr_kb_bj_14sep09.jpg

Viðgengst einelti á Alþingi? Það fullyrti Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar í aðdraganda atkvæðagreiðslu ESB frumvarpsins.
Birgitta ræðir um neikvæð samskipti þingmanna og tillögur til úrbóta í þættinum

Í nærveru sálar, mánudagskvöld 14. september kl.21.30 á ÍNN.

Í þættinum skoðum við hvers lags vinnustaður Alþingi er. Þar t.d. leggja menn allt kapp á að viðra hugmyndir sínar sem mest og best, reyna að selja öðrum, samflokksmönnum og/eða þingmönnum annarra flokka skoðanir sínar og fá þannig sem flesta á sitt band.

Menn takast á í ræðu og riti, á fundum og í einkasamtölum. Allt gengur út á að þoka málum áfram,  lenda þeim, þannig að meirihluti komist að niðurstöðu sem síðan leiðir til setningu laga og reglugerða.

Á vinnustað eins og Alþingi þar sem álag er gríðarmikið þarf hver og einn að vita hvar mörkin liggja í samskiptum við aðra og einnig að geta sett sín persónulegu mörk sem öðrum leyfist ekki að vaða yfir. 

Þingmenn tilheyra ekki stéttarfélögum í starfi sínu sem þingmenn og eru þar að leiðandi eina stétt landsins sem eru undanþegnir ákvæðum vinnuverndarlöggjafarinnar.

Ekki er vitað til þess að áður hafi nokkur þingmaður sagst hafa orðið vitni að einelti eða ofbeldi.

Hvaða úrræði hefur Alþingi þegar kemur til svona mála?

Er ekki einfaldlega tímaspursmál hvenær einhver á svo álagsmiklum og krefjandi vinnustað sem Alþingi er, leggur fram kvörtun af þessum toga?

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvar viðgengst ekki einelti?

Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 21:40

2 Smámynd: 365

Af hverju fékkstu ekki einhvern annan þingmann en Birgittu í þetta viðtal þitt t.d. einhvern sem dottinn er af þingi?  Birgitta mun hafa allt á hornum sér vittu til, maður bíður spenntur.  Bara einhvern annan.

365, 13.9.2009 kl. 23:00

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband