Mönnum sem beita maka sína ofbeldi stendur til boða meðferðarúrræðið Karlar til ábyrgðar

naerverusalar95karlark.jpg

Heimilisofbeldi er eitt af þeim vandamálum sem er hvað mest falið. Þess vegna er erfitt að gera sér grein fyrir algengi þess.

Sá sem fyrir því verður upplifir oft mikla skömm og finnst jafnvel sem sökin sé af einhverjum ástæðum sín. Gerendum finnst erfitt að taka ábyrgð á ofbeldinu og telja oft að sökin sé raunverulega þolandans fremur en þeirra sjálfra. Þeir upplifa líka skömm og finnst mörgum því erfitt að koma fram í dagsljósið að sjálfdáðum og leita sér hjálpar.

Í þættinum Í nærveru sálar á ÍNN hefur áður verið rætt um heimilisofbeldi en á síðasta ári kom í viðtal í þáttinn framkvæmdarstýra Kvennaathvarfsins. 

Gestir þáttarins 19. október eru sálfræðingarnir Andrés Ragnarsson og Einar Gylfi Jónsson en þeir annast meðferðarprógramm fyrir karla sem beita maka sína ofbeldi. Um er að ræða sérúrræði fyrir karla en þeir eru í meirihluta þeirra sem beita maka sína ofbeldi og þá sérstaklega sé um að ræða líkamlegt ofbeldi. Konur hafa einnig verið uppvísar að því að beita maka sína ofbeldi en hvað algengi varðar er að sama skapi erfitt að segja til um. Gera má því skóna að sé konan gerandi sé oftast um að ræða andlegt ofbeldi. 

Eitt og annað þessu tengt verður krufið s.s. mögulegar orsakir fyrir því að einstaklingur beitir ástvin sinn ofbeldi, áhrifin á fjölskylduna og afleiðingar til skemmri og lengri tíma fyrir meðlimi fjölskyldunnar og fjölskylduna í heild.

Verkefnið Karlar til ábyrgðar www.karlartilabyrgdar.is var sett á laggirnar fyrir tíu árum.  Sýnt hefur verið fram á að það hafi skilað árangri fyrir marga sem lokið hafa meðferðinni takist þeim á annað borð að horfast í augu við vandamálið og taka ábyrgð á ákvarðatöku sinni og hegðun.

 

 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru margar konur sem að SÆKJA Í svona menn.

Að hver sé sinnar gæfu smiður?

Konur þið getið alltaf skilið við manninn ef ykkur skildi ofbjóða.

Jón Þórhallsson (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 17:26

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband