Markmiðið með Jesúsauglýsingunni náð

Það hefur eitthvað verið að ásækja mig frá því að ég sá þennan Kastljóssþátt með Jóni Gnarr og Halldóri Reynissyni, fulltrúa Biskupsstofu.

Á hlaupabrettinu í dag, (en á því finnst mér ég oftar en ekki sjá hluti í öðru ljósi) sló niður ákveðinni hugsun varðandi þessa margumtöluðu Jesúsauglýsingu og Síðustu kvöldmáltíðina.
Nú er bara spurning hvort ég komi henni frá mér án þess að menn misskilji mig.
Því vil ég byrja á því að segja að mér finnst Jón Gnarr hinn viðkunnalegasti náungi og oft mjög  fyndinn og fjölhæfur skemmtikraftur.  Auglýsingin er líka vel gerð, um það eru flestir sammála um. Hún olli mér persónulega hvorki hneykslun né sársauka.

EN.. .. var ekki markmiði framleiðanda auglýsingarinnar að fá einmitt bæði styðjandi viðbrögð og einnig reiði og hneyklunarviðbrögð?  Vitað var fyrir víst að ákveðinn hópur í samfélaginu myndi bregðast neikvætt við vegna þess efniviðar sem notaður er í henni. 

Ég álít sem svo að efniviðurinn sem er Píslarsagan er valin vegna umróta sem ljóst var að hann myndi valda.

Þess vegna stingur mig þessi sakleysis,- og undrunarsvipur sem Jón Gnarr sýndi í þessu þætti Kasljóss þegar Halldór Reynisson tjáði hug sinn í garð auglýsingarinnar.

Önnur hugsun sem leitar á mig;
Jón fór á fund biskups af því að hann sagðist umhugað um álit hans á að nota þetta efni í auglýsingu.
Þá spyr ég:
Ef honum var svona umhugað um álit Biskupsstofu,  af hverju sýndi hann biskupi ekki auglýsinguna á lokastigum framleiðslunnar og áður en hún birtist opinberlega??

Hvað er meiri auglýsing á auglýsingu en einmitt að hafa hana þannig úr garði gerða að hún verði verulega umdeild: veki upp flóru jákvæðra og neikvæðra tilfinninga?

Markmiðinu er náð, svo mikið er víst en þá hefði mátt sleppa þessum fundi með biskupi.
Hann virkar nú, alla vega á mig, eins og einhver leikur eða sýndarmennska svona til að þykjast vera goodý gæ og svo er bara settur upp einhver undrunarsvipur þegar gagnrýnisraddir heyrast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Undirrituð er á sömu skoðun, sýndarmennska hjá höfundinum ekkert annað.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 8.9.2007 kl. 21:02

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sammála þér með þetta. Mér finnst ég aldrei getað séð á Jóni Gnarr hvort hann er að segja satt eða ljúga þegar hann talar. Eitthvað svo einsleit persóna með einkennilegan attitude.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.9.2007 kl. 22:04

3 Smámynd: Ívar Jón Arnarson

Auðvitað er þessarri auglýsingu ætlað að stuða og vekja viðbrögð, það er í raun besta auglýsingin.

Eitt fannst mér mjög fyndið hinsvegar í viðtalinu í Kastljósinu. Halldór fór að gagnrýna notkun píslarsögunnar í svo "commercial" tilgangi, eins og hann orðaði það. Jón þóttist alveg bera virðingu fyrir þeirri skoðun, enda trúaður maður, að eigin sögn, en benti Halldóri samt sem áður góðfúslega á að kirkjan stæði sjálf í sölu á varningi tengdum píslasögunni, í verslun kirjunnar. Kirkjan væri sem sagt sjálf að nota píslarsöguna í "commercial" tilgangi.

Halldór þagnaði all snögglega við þetta.

Ívar Jón Arnarson, 9.9.2007 kl. 16:04

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Auðvitað var þetta efni notað vegna þess að það var vitað að sumir myndu bregðast illa við.  En er þetta ekki einmitt vanmáttur kirkjunnar manna, að geta ekki tekið svona hlutum?  Þeir ættu aðeins að hætta að taka sjálfa sig og trúna svona alvarlega, og þeir myndu ekki verða fyrir þessum ertingum.  Alveg eins og börn sem þola ekki stríðni, þeim er meira strítt vegna einmitt þess.  Eins og maður segir við börnin sín, hættu að verða svona æst/ur þegar þér er strítt, því þá er tilgangnum náð.  Sagði ekki Jésú einmitt, leyfið börnunum að koma til mín, því þeirra er himnaríki.  Fólk mætti aðeins læra af börnunum og því sem fólk er að segja við þau.  Það má ýmislegt læra þó maður sé orðin fullorðin.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.9.2007 kl. 17:28

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þegar froðunni er blásið burt af öllu því snakki sem fram fer um þetta mál, þá er ein spurning sem eftir stendur og hún segir allt í mínum huga

er viðeigandi/smekklegt að ögra endilega því sem mörgum er heilagt og nota Guðs orð í þeim tilgangi einum   -   að selja gsm síma...

Hvar setjum við mörkin, eða höfum við engin mörk, er ekki einfaldlega hægt að selja símana með öðrum hætti. 

Ég hef hinsvegar alls ekkert á móti góðlátlegu gríni um trúmál.

Marta B Helgadóttir, 9.9.2007 kl. 23:18

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fátt hefur vakið betur athygli á kjarna Kristindómsins hin síðari ár en umrædd auglýsing Jóns Gnarrs.

Honum hefur tekist að slá a.m.k. tvær flugur í einu höggi; að vekja athygli á þriðju kynslóð farsíma og píslargöngu Krists sem er hverjum manni hollt að hugleiða.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 10.9.2007 kl. 09:56

7 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég er sammála því að þetta var úthugsað bragð til að auglýsingin fengi sem mesta athygli. En á hinn bóginn finnst mér undarlegt að fólk hér virðist almennt sýna sárindum kristinna manna skilning í þessu sambandi en margir töluðu mikið um undarleg viðbrögð múslima við skopmyndum af Múhameð. Þurfum við ekki svolítið að skoða hvort frelsið til að skopast að því sem sumum er heilagt eigi eingöngu við þegar um kristna trú er að ræða.

Steingerður Steinarsdóttir, 10.9.2007 kl. 10:18

8 Smámynd: Bragi Þór Thoroddsen

Það er búið að sýna all margar gamanmydnir hérlendis sem hafa gert grín að kristnidómnum.  Mel Brooks gerði einhvern tíman mynd sem sýndi að boðorðin hefðu í upphafi verið 20, en 10 fóru þegar leirtafla brotnaði.  Monty Python hafa átölulaust gert grín að þessu og svo ótalmargir aðrir. 

Það er ekkert sem segir að innlendir grínarar hafi minna leyfi til þess en erlendir.  Held að þarna hafi öll markmið auglýsingarinnar náðst.  Hún er fyndin (óumdeilanalega) þó sumir þykist ekki hafa húmor fyrir henni.  Hún vekur umtal sem er besta auglýsingin.  Auk þessa verður óneitanlega umræða uppi um hvað telst guðlast, en það er verulega á reiki og síbreytilegt hugtak og auglýsendum sem öðrum ekki bjóðandi að vita ekki mörkin. 

Málið er allt hið skemmtilegasta, gefur trúlausum og heittrúuðum endalausa uppsprettu að vangaveltum um hvað telst hlíða og hvað ekki.

vcd

Bragi Þór Thoroddsen, 10.9.2007 kl. 23:13

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband