Á ekki að standa við gefið loforð?

Ég hef vakið athygli á því að Reykjavíkurborg hafi ekki ennþá endurgreitt öllum leigjendum Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalagsins, sérstakar húsaleigubætur, afturvirkt með dráttarvöxtum, líkt og samþykkt var í borgarráði þann 3. maí síðastliðinn í kjölfar úrskurðar Hæstaréttar.

Árið 2015 höfðaði einn leigjandi Brynju hússjóðs mál gegn Reykjavíkurborg þar sem honum hafði verið synjuð umsókn um sérstakar húsaleigubætur á þeim forsendum að hann leigði húsnæði hjá hússjóði Öryrkjabandalagsins, en ekki hjá Félagsbústöðum eða á almennum markaði. Höfðaði hann mál gegn Reykjavíkurborg á þeim forsendum að óheimilt væri að mismuna borgurum eftir búsetu.

 

Héraðsdómur Reykjavíkur tók kröfu leigjandans til greina og  var synjun Reykjavíkurborgar felld úr gildi, þann 17. apríl 2015. Dómstóllinn komst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurborg hefði með ólögmætum hætti takmarkað óhóflega og með ómálefnalegum hætti skyldubundið mat sitt á aðstæðum fólks. Síðar fór málið fyrir Hæstarétt hvar niðurstaðan var staðfest.

 

Reykjavíkurborg fól velferðarsviði borgarinnar að afgreiða kröfurnar, til allra leigjenda Brynju hússjóðs, án tillits til þess hvort þau áttu umsókn inni eða ekki. Einnig var samþykkt að greiða dráttarvexti af öllum kröfum, aftur í tímann, án tillits hvort gerð hafði verið krafa um dráttarvexti eða ekki. 

Óljós svör leiða til kvíða

Nú er ekki vita hvar málið standi innan velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, en veit þó til þess að margir leigjendur hafi enn ekki fengið neina endurgreiðslu, þó svo komnir séu rúmir fjórir mánuðir frá ákvörðun borgaryfirvalda um endurgreiðslurnar:

Þeir leigjendur sem leitað hafa til mín segja svör borgarinnar afar óljós og jafnvel séu engin svör veitt. Ég veit ekkert hversu margir hafa fengið endurgreitt, ef einhverjir, en þetta eru eitthvað um 460 manns. Þessi ákvörðun var tekin rétt fyrir kosningar og glöddust þá margir, en nú fjórum mánuðum síðar eru leigjendur orðnir óþreyjufullir og jafnvel kvíðnir yfir því að þetta sé ekkert að koma, því þetta er auðvitað baráttumál til 10 ára,“

Ég hyggst taka málið upp á borgarráðsfundi á fimmtudag. 

Bókun borgarráðs frá 3. maí er eftirfarandi:

Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 728/2015 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurborg hefði verið óheimilt að synja umsækjenda um sérstakar húsaleigubætur á þeim forsendum að hann leigði íbúð af Brynju, hússjóði Öryrkjabandalagsins. Á grundvelli þessa dóms hefur nú þegar verið gengið frá greiðslum til allra þeirra sem eru í samskonar aðstæðum og umræddur dómur tekur til og uppfylla kröfur um greiðslur sérstakra húsaleigubóta að öðru leyti. Dómurinn tekur hins vegar ekki á því álitaefni hvort leigjendur Brynju, hússjóðs ÖBÍ, sem ekki höfðu lagt inn umsókn, ættu rétt til sérstakra húsaleigubóta. Því er lagt til að borgarráð samþykki að fela velferðarsviði Reykjavíkurborgar að afgreiða kröfur um greiðslu sérstakra húsaleigubóta frá leigjendum Brynju, hússjóðs ÖBÍ, án tillits til þess hvort að umsókn hafi legið fyrir, sbr. nánari umfjöllun í meðfylgjandi minnisblaði. Þá er einnig lagt til að velferðarsvið Reykjavíkurborgar greiði dráttarvexti til þeirra sem eiga rétt á greiðslum sérstakra húsaleigubóta aftur í tímann án þess að gerð sé sérstök krafa um það. Jafnframt er lagt til að velferðarsvið leiti liðsinnis Öryrkjabandalagsins við að vekja athygli þeirra einstaklinga sem hugsanlega eiga rétt til greiðslu sérstakra húsaleigubóta aftur í tímann í samræmi við tillögu þessa. R17080174

Samþykkt.


Gæludýr skipa iðulega stóran sess í hjörtu eigenda þeirra

Tillaga hefur verið lögð fram þess efnis að leyfa hunda- og kattahald í félagslegu húsnæði í eigu borgarinnar. Leyfið er háð þeim skilyrðum að ef um sameiginlegan inngang eða stigagang er að ræða er hunda- og kattahald háð samþykki 2/3 hluta eigenda. Ef um sérinngang er að ræða er gæludýrahaldið leyfilegt. Þetta er í samræmi við Samþykkt um hundahald í Reykjavík dags. 16. maí 2012.


Ekkert getur komið í stað tengsla við aðra manneskju en gæludýr getur uppfyllt þörf fyrir vináttu og snertingu. Gæludýr þar með talið hundar og kettir eru hluti að lífi fjölmargra og skipa stóran tilfinninga- og félagslegan sess í hjörtu eigenda þeirra. Öll þekkjum við ýmist persónulega eða hjá vinum og vandamönnum hvernig gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt, ekki síst hjá þeim sem eru einir og einmanna. Átakanleg eru þau fjölmörgu tilvik þar sem fólk hefur orðið að láta frá sér hundana sína vegna þess að þeir eru ekki leyfðir í félagslegum íbúðum á vegum borgarinnar.
Margar rannsóknir hafa sýnt fram á góð áhrif af umgengni manna við dýr. Rannsóknir sýna að umgengni við dýr eykur tilfinningalega og líkamlega vellíðan og eykur m.a. sjálfstraust, einbeitingu, athygli og minnkar streituviðbrögð. Dýr veita einstaklingnum vinskap, líkamlega snertingu og sýnir áhuga og væntumþykju án nokkurra skilyrða. Ást til gæludýrsins síns getur verið djúpstæð. Hundar og kettir sem dæmi eru oft hluti af fjölskyldunni. Sú sorg sem nístir þegar gæludýr fellur frá eða aðskilið frá eiganda sínum þekkjum við mörg, ef ekki af eigin reynslu þá annarra. Að banna gæludýr eins og hunda og ketti í félagslegu húsnæði borgarinnar er ómanneskjulegt og ástæðulaust. 
Lagt fram í borgarráði 13. september af borgarfulltrúa Flokkur Folksins


Bloggfærslur 16. september 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband