Kjóllinn hennar Ragnhildar í Kastljósinu í kvöld var ..spes..

Þetta var hin mesta furðuflík sem hún Ragnhildur klæddist í Kastljósinu í kvöld og kalla ég nú ekki allt ömmu mína í þeim efnum. Fyrst sýndist mér dressið vera með grænan, munstraðan smekk en svo kom nú í ljós við nánari athugun að þetta græna, skræbótta stykki var áfast við kjólinn sem var að öðru leyti svartur með einhverjum svona glitrandi borðum undir græna smekknum og á ermunum. Alla vega stórmerkileg hönnun svo mikið er víst.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Einhverra hluta vegna ninnst manni maður getað lesið úr þessu hvað þér finnst, hahaha.

Sigfús Sigurþórsson., 10.3.2007 kl. 00:48

2 identicon

Um hvað var Ragnhildur að tala?

Davíð Kristjánsson (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 04:55

3 identicon

 So what ??

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 08:22

4 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Hún er gullfalleg stúlka.
Ég viðurkenni það alveg að spá mikið í föt, líklega galli fremur en kostur?

Kolbrún Baldursdóttir, 10.3.2007 kl. 09:52

5 Smámynd: Guðmundur H. Bragason

Er einmitt að horfa á endursýningu Kastljóssins og verða að segja að mér finnst þessi kjóll þrusuflottur og klæðir Ragnhildi mjög vel. 

Guðmundur H. Bragason, 10.3.2007 kl. 11:15

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Alltaf gaman að sjá hana Ragnhildi, hún er fönguleg kona og fer sífellt fram í starfi. Í byrjun fannst manni hún hún eilítið barnaleg í Kastljósinu, en síðan hefur hún blómstrað!

Greta Björg Úlfsdóttir, 10.3.2007 kl. 12:13

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband