Frístundakortiđ ekki fyrir börn fátćkra foreldra

Á nćsta fundi borgarstjórnar 18. febrúar vil ég rćđa enn meira um afbökun reglna frístundakortsins og minna aftur á upphaflegan tilgang ţess. Ég mun tengja umrćđuna viđ tillögu mína um ađ fjölga stöđugildum hjá Leikni sem er lítiđ íţróttafélag í Efra Breiđholti. Félagiđ berst í bökkum og er ađ reyna ađ halda úti fótboltadeild međ ađeins einn starfsmann. Í hverfi 111 býr hćsta hlutfall fjölskyldna međ fjárhagsađstođ og hćsta hlutfall borgara af erlendum uppruna. Ţar er einnig lćgsta hlutfall barna sem stunda íţróttir en í ţessu hverfi er jafnframt Frístundakortiđ minnst nýtt af öllum hverfum eđa innan viđ 70%. Í sumum öđrum hverfum er notkun Kortsins yfir 90%. Ef horft er á íţróttir einungis ţá er notkun ţess einnig minnst í hverfi 111 í samanburđi viđ önnur hverfi(ađeins 21% stúlkna og 43% drengja). 

Ég tel ađ ein af ástćđum ţess ađ börnin eru ekki ađ nota Frístundakortiđ í hverfi 111 sé sú ađ foreldrar sem eru í fjárhagserfiđleikum eru tilneyddir til ađ nota rétt barna sinn til frístundakortsins til ađ greiđa frístundaheimiliđ eđa tungumálakennslu auk ţess sem gefa ţarf upp rétt Frístundakortsins til ađ hćgt sé ađ sćkja um fjárhagsađstođ, skuldaskjól eđa afskriftir skulda hjá borginni. Svona er nú komiđ fyrir Frístundakorti barnanna.

Haustiđ 2018 voru 6.298 börn í 1.-4. bekk. Frístundakortiđ var nýtt upp í greiđslu fyrir dvöl 1.503 barna á frístundaheimili eđa 23,9% ţeirra.

Upphaflegur tilgangur Frístundakortin var ađ öll börn án tillits til efnahags foreldra geti lagt stund á íţróttir. Áriđ 2009 var af tilstuđlan VG reglum um Frístundakortiđ breytt, fyrst ţannig ađ hćgt var ađ nota ţađ til ađ greiđa frístundaheimili en svo var haldiđ áfram ađ gengisfella Kortiđ međ ţví ađ tengja ţađ viđ fjárhagsađstođ og skuldir foreldra. Ţar međ gat barniđ ekki notađ ţađ til ađ greiđa međ ćfingagjöld t.d. til ađ leggja stund á fótboltaiđkun hjá Leikni. 

Hćgt er ađ fara ađrar leiđir til ađ hjálpa fólki í fjárhagsvanda en ađ hrifsa af börnunum rétt ţeirra til ađ nota Frístundakortiđ. Ég hef bent á styrki á grundvelli 16. gr. A. Eins og stađan er nú er ekki hćgt ađ sćkja um styrk samkv. ţeirri grein nema uppfylla skilyrđi um fjárhagsađstođ og til ađ uppfylla skilyrđi um fjárhagsađstođ ţarf ađ gefa eftir rétt barnsins til Frístundakortsins. Svona ganga nú kaupin á eyrinni fyrir sig í borginni. 

Börn eru á Frístundaheimili til ţess ađ foreldrar geti unniđ úti.  Eins og ţessum málum er háttađ í dag er veriđ ađ beita börn efnaminni foreldra órétti. Ţađ er veriđ ađ gefa ţeim tćkifćri međ hćgri hendi en hrifsa ţađ til baka međ ţeirri vinstri.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband