Hundaeftirlitsgjald ólögmćtt?

Skatt má ekki leggja á nema međ lögum en svo segir í 40. gr. stjórnarskrárinnar. Öđru gegnir um ţjónustugjöld. Stjórnvöldum er almennt heimilt ađ krefjast greiđslu fyrir veitta ţjónustu. Ef stjórnvöld á annađ borđ innheimta gjöld langt umfram kostnađarţörf er ekki um annađ ađ rćđa en skattheimtu í dulbúningi. Hundaeftirlitsgjald í Reykjavík er skýrt dćmi um slíkt. Reykvíkingar ţurfa ađ greiđa árlega 19.850 kr. vilji ţeir eiga hund. Sú gjaldtaka er sögđ nauđsynleg til ađ standa undir kostnađi viđ hundaeftirlit í borginni. Eigendur skráđra hunda greiđa auk ţess skráningargjald ţegar hundurinn er fyrst skráđur og ţegar hundurinn deyr er ekki hćgt ađ afskrá hann nema framvísa vottorđi frá dýralćkni sem einnig ţarf ađ greiđa fyrir.

Ţví vekur ţađ athygli hvernig störfum hundaeftirlitsins er lýst í nýrri skýrslu stýrihóps um ţjónustu viđ gćludýr. Í skýrslunni segir „Meginverkefni hundaeftirlitsins í dag felst í ađ taka viđ ábendingum um óskráđa hunda sem og ađ fá óskráđa hunda á skrá og sinna afskráningum á móti.“ Hvers vegna skyldi svo mikil áhersla vera lögđ á skráningu hunda? Ţađ gefur augaleiđ ađ ţađ er til ađ auka tekjurnar. Um 2.000 hundar eru á skrá í Reykjavík en samkvćmt skýrslu stýrihópsins má gera ráđ fyrir ţví ađ hundar séu á a.m.k. 9.000 heimilum í borginni. Hundaeftirlitiđ getur ţví aukiđ tekjur ef fleiri hundar eru skráđir.

Ţađ fylgir ţví vinna ađ hafa eftirlit međ hundum og fanga lausa hunda. Sú starfsemi er ţó langt frá ţví ađ vera svo umsvifamikil ađ innheimta ţurfi jafn hátt gjald og nú er gert. Samkvćmt upplýsingum frá heilbrigđiseftirliti Reykjavíkurborgar hefur hundaeftirlitiđ tekiđ í vörslu 19 hunda síđastliđin tvö ár, minna en einn hund á mánuđi.

Samkvćmt vinnuskýrslum hundaeftirlitsmanna ţađ sem af er ári kemur fram ađ hundaeftirlitsmenn hafi fariđ í 89 eftirlitsferđir vegna kvartana. Tveir hundaeftirlitsmenn eru í fullu starfi og samsvarar ţađ u.ţ.b. einni eftirlitsferđ í viku fyrir hvorn hundaeftirlitsmann. Ţađ er ţví auđséđ ađ starf hundaeftirlitsmanna er ekki fullt starf fyrir eina manneskju, hvađ ţá fyrir tvćr.

Rangt er  ađ innheimta eins hátt gjald og raun ber vitni. Gjaldtakan dregur augljóslega úr skráningu hunda og gerir ţar međ eftirlitsstörf erfiđari. Ţá er gjaldiđ nýtt í ađra hluti en ţá ţjónustu sem ţađ á ađ standa undir. Í skýrslu stýrihópsins er tekiđ fram ađ gjöldin „séu hugsuđ til ţess ađ ţjónusta samfélagiđ í heild og ţá ekki síđur til ţess ađ gćta hagsmuna ţeirra sem ekki eru dýraeigendur.“  Ţví er ekki um ţjónustugjald ađ rćđa heldur ólögmćta skattheimtu.

Meirihluti borgarstjórnar felldi tillögu mína um ađ leggja niđur skráningar- og hundaeftirlitsgjaldiđ. Ţví mun borgin áfram innheimta skatt úr hendi ţeirra hundaeigenda sem eru heiđarlegir og skrá sína hunda. Mikilvćgt er ađ ţađ verđi skođađ fyrir alvöru hvort hundaeftirlitsgjaldiđ sé lögmćtt.

 

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins
Greinin er birt í Fréttablađinu 17.12. 2020


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband