Úrbćtur á starfsađstöđu nemenda og kennara í Laugarnesskóla
13.5.2023 | 15:39
Flokkur fólksins er međ 3 mál á dagskrá fundar borgarstjórnar ţriđjudaginn 16. maí. Eitt ţeirra er:
Úrbćtur á starfsađstöđu nemenda og kennara í Laugarnesskóla.
Hér er greinargerđ međ umrćđunni:
Nýlega barst ályktun frá fulltrúum starfsfólks Laugarnesskóla en ţar segir ađ í of mörg ár hafa nemendur og starfsfólk Laugarnesskóla unniđ í heilsuspillandi starfsumhverfi vegna myglu, rakaskemmda og leka. Einnig hafa ţau ítrekađ ţurft ađ skipta um stofur međan plástrađ er yfir myglu og rakaskemmdir. Starfsfólk hefur hrökklast úr starfi vegna veikinda tengdum myglu. Frá ţví í haust hefur ekki veriđ hćgt ađ kenna í hluta heimilisfrćđi stofunnar vegna viđhaldsframkvćmda. Ţessum framkvćmdum er enn ekki lokiđ og hafa iđnađarmenn ekki sést í marga mánuđi.
Í of mörg ár hafa nemendur og starfsfólk Laugarnesskóla unniđ í heilsuspillandi starfsumhverfi vegna myglu, rakaskemmda og leka. Frá ţví í haust hefur ekki veriđ hćgt ađ kenna í hluta heimilisfrćđistofunnar vegna viđhaldsframkvćmda. Ţessum framkvćmdum er enn ekki lokiđ og hafa iđnađarmenn ekki sést í marga mánuđi. Skólayfirvöld hafa ítrekađ óskađ eftir úrbótum viđ Reykjavíkurborg sem er vel kunnugt um stöđuna.
Laugarnesskóli er löngu sprunginn og nemendum hefur fjölgađ hratt undanfarin ár. Spár Reykjavíkurborgar um nemendafjölda og áform um uppbyggingu í hverfinu benda einnig til ţess. Skortur á kennslustofum og plássleysi í öđrum rýmum, s.s. sérgreinastofum, íţróttaađstöđu, mötuneyti, eldhúsi og vinnuađstöđu er ţví ekki tímabundiđ vandamál.
Ţađ er međ ólíkindum ađ ţađ taki svona langan tíma ađ hefja viđgerđir og undirbúa viđbyggingu. Ţegar spurt er um hvađ veldur töfum er sífellt klifađ á ađ veriđ sé ađ undirbúa, ,,ađ stilla upp eins og ţađ er gjarnan orđađ hjá borgaryfirvöldum ţegar skólasamfélagiđ ýtir viđ málinu. Sagt er ađ framkvćmdaađilar séu ađ stilla upp. Enginn veit svo sem hvađ er átt viđ međ ţví eđa hvort ţađ merki ađ hefja eigi brátt alvöru framkvćmdir.
Hér er ekki um einsdćmi ađ rćđa. Hávćr hróp hafa borist lengi frá skólasamfélaginu vegna myglu og raka vanda í fjölmörgum skólum borgarinnar. Frá árinu 2018 hefur greinst mygla í yfir 30 skólahúsum sem tilheyra borgarreknum leik- og grunnskólum samkvćmt samantekt fréttastofu RÚV frá ţví í haust. Ţá voru yfir 1.200 grunn- og leikskólabörn í húsnćđi utan skólalóđar heimaskóla vegna mygluvandamála, 860 grunnskólabörn og 350 leikskólabörn. Síđan ţá hafa líklega bćst viđ hátt í hundrađ börn. Mörg ţúsund börn verđa fyrir raski á skólastarfi vegna myglu og raka. Skađsemi og önnur áhrif af ţessu eru međ öllu óljós.
Hin málin eru:
Umrćđa um húsaleigumarkađinn Í Reykjavík (ađ beiđni fulltrúa Flokks fólksins)
Umrćđa um Kveikjum neistann í Reykjavík (ađ beiđni fulltrúa Flokks fólksins)
Sjá má greinargerđ međ hinum málunum hér:
https://kolbrunbaldurs.is/dagskra-borgarstjornar-akvedin-a-fundi-forsaetisnefnd-12-mai-2023/