Eiga að lifa bíllausum lífsstíl þar sem engar eru almenningssamgöngurnar
19.8.2024 | 16:44
Ég sárvorkenni fólkinu sem býr í Gufunesþorpinu. Það hélt það gæti lifað þar bíllausum lífsstíl en annað kom heldur betur á daginn
Ég lagði fram þessa tillögu á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs:
Tillaga Flokks fólksins um að Strætó bs. skipuleggi strætóferðir inn í Þorpið
Flokkur fólksins leggur til að strætó aki inn í Þorpið í Gufunesi, að Þorpið verði einfaldlega hluti af almenningssamgangnakerfinu. Engar almenningssamgöngur eru í vistþorpinu utan þess að hægt er að hringja á leigubíl.
Greinargerð
Fólk sem fjárfesti í íbúð í Þorpinu var lofað að hægt væri að lifa þar bíllausum lífsstíl en hefur orðið að kaupa sér bíl þar sem engar almenningssamgöngur standa þessu fólki til boða. Bílastæði eru fá sem bæta þarf úr hið snarasta. Fólk hefur neyðst til að leggja ólöglega og nú er bílastæðasjóður farin að sekta bíleigendur sem hvergi geta lagt bílnum sínum. Það er ámælisvert að meirihlutinn geti ekki tryggt aðgang að almenningssamgöngum í íbúðahverfi í Gufunesi sem hefur verið kynnt sem vistþorp. Án almenningssamgangna kemst fólk ekki spönn frá rassi enda langt í almenningsþjónustu. Í grein sem íbúi skrifaði í des. 2021 á visi.is segir:
"Næsta strætóstoppistöð er í 20-25 mínútna göngufjarlægð, en þá leið getur manneskja einungis farið ef hún er fullfær og ófötluð enda liggur sú leið upp brattan, ólýstan slóða í gegnum móa (einungis er um slóða að ræða, enga formlega leið eða gangstétt). Og ef manneskja ætlar að taka strætó með barnavagn þá þarf hún að ganga um 45 mínútna leið - og úti á miðjum Gufunesveginum, því engin gangstétt er þar meðfram heldur,"
Einnig eru alvarlegar athugasemdir gerðar við að skortur sé á göngustígum sem liggja að hverfinu. Almenningssamgöngur í Gufunesið snúast ekki bara um íbúana sjálfa heldur einnig fjölskyldur og vini þeirra sem vilja koma í heimsókn.
Tillaga um að fjölga bílastæðum í Þorpinu Gufunesi.
Flokkur fólksins leggur til að komin verði upp fleiri bílastæðum í Þorpinu í Gufunesi. Það stóð til að fólk lifði bíllausum lífsstíl í Þorpinu en það er með öllu útilokað vegna fjarlægðar frá þjónustu og engar almenningssamgöngur eru á staðnum þrátt fyrir tillögur þar um. Flestir hafa nú þegar neyðst til að kaupa sér bíl en í Þorpinu er skortur á bílastæðum og neyðast bíleigendur til að leggja bíl sínum á svæði sem ekki eru merkt sem bílastæði.
Greinargerð
Nýlegar fréttir bárust af því að verið væri að sekta fólk fyrir ólöglega lagningu bíla í Þorpinu. Það er eðli málsins samkvæmt afar ósanngjarn þar sem mikill skortur er á bilastæðum og almenningssamgöngur engar. Byggingarframkvæmdir eru auk þess í gangi á staðnum. Finna þarf svæði í Þorpinu þar sem hægt er að koma fyrir nægum bílastæðum svo fólk þurfi ekki að leggja ólöglega. Ekki er hægt að búa í Þorpinu án þess að eiga bíl eins og sakir standa vegna skorts á almenningssamgöngum auk þess sem talsverð fjarlægð er í alla almenningsþjónustu. Sú eina lausn sem stendur fólki til boða núna er í formi pöntunarþjónustu. Skal farþegi láta vita með minnst hálf tíma fyrirvara fyrir áætlaða brottför og stilla sér upp við merkta biðstöð hjá Gufunesþorpi og bíða þar eftir leigubíl sem kemur þeim á næstu skiptistöð Strætó.
Meirihlutinn samþykkti að hækka fjárheimildir til strætósamgangna um 14,6 milljónir króna til að auka almenningssamgöngur í Gufunesi á fundi sínum þann 7. desember 2022 og er þetta útkoman. Fulltrúa Flokks fólksins finnast það varla geta verið að þetta fyrirkomulag sé hugsað til framtíðar. Hér kann að vera um millibilsástand að ræða sem er reyndar orðið alltof langt. Varla munu íbúar sætta sig við þetta mikið lengur. Lítið sem ekkert hefur verið gert í þessu máli þrátt fyrir að tæp tvö ár séu liðin frá því að borgin gaf vilyrði fyrir lóðum undir Gufuneshverfið.