Í Nærveru Sálar á ÍNN

Í nærveru sálar nefnist nýr þáttur á ÍNN. Í þessum þáttum sem eru hálftíma langir er markmiðið að skoða ýmis sálfræðileg málefni og málefni tengd þroska einstaklingsins. Reynt verður að velja málefni sem áhorfendum finnst e.t.v að hafi ekki fengið mikla umfjöllun í þjóðfélaginu, málefni sem brenna á eða málefni sem eru áhugaverð vegna sérstöðu eða áhrifa sem þau vekja. Í þáttinn koma gestir, fagaðilar eða fólk með reynslu í því málefni sem er til umræðu hverju sinni.

Við spjöllum síðan saman á léttum nótum og hver veit nema okkur takist að senda til þeirra sem eru að horfa, nokkur gagnleg skilaboð, mola sem gætu nýst í hinu daglega lífi.

Áhorfendur eru hvattir til að senda póst hafi þeir áhuga á að fjallað verði um eitthvað ákveðið efni í þættinum. Netfang: kolbrunb@inntv.is

Fyrsti þátturinn var sendur út 22. maí.
Umræðuefni: Hvernig það er að heita sjaldgæfu nafni?
Gestir þáttarins voru Baldur Sigurðsson, dósent við KHÍ en hann á einnig sæti í Mannanafnanefnd og Hreindís Ylva, nemi.

Næsti þáttur verður sendur út fimmtudaginn 29. maí.
Umræðuefni: Ýmsar hliðar heimilisofbeldis.
Gestur verður Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdarstýra Kvennaathvarfsins.

Til upplýsingar:
Í nærveru sálar er hluti af málshættinum AÐGÁT SKAL HÖFÐ Í NÆRVERU SÁLAR og er jafnframt ljóðlína í kvæði eftir Einar Benediktsson sem nefnist Einræður Starkaðar, 3. hluti, 3. vers:

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúizt við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.

Einar Benediktsson, Íslenzkt ljóðasafn, 1974.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þetta var sniðug hugmynd. Ég hef lent í ýmsu varðandi nafnið mitt og sagði meðal annars frá því á blogginu mínu hvernig spákonum og spámiðlum hefur iðulega skjöplast því þeir sjá gjarnan gamla konu sem ég heiti eftir fylgja mér en ég var skírð eftir skáldsagnapersónu og algerlega út í loftið. Þær trúa því nefnilega ekki að nokkur myndi skíra barn sitt þessu nafni ótilneyddur og skjóta því á einhverja gamla konu sem neytt hafi nafninu upp á mömmu.

Steingerður Steinarsdóttir, 23.5.2008 kl. 14:31

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Kvitt

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 23.5.2008 kl. 15:36

3 identicon

Til hamingju með þáttinn

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 16:36

4 identicon

Í væntanlegum þætti Í nærveru sálar mun samkvæmt ofansögðu stíga fram í þættinum Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdarstýra Kvennaathvarfsins. Ekki fæ ég séð að ofangreindu að karlmaður verði þar til andsvara. Það veldur mér miklum áhyggjum og á einhvern hátt virðist hafa horfið í framsækinni umræðu og lagasetningum gegn reykingarfólki að það er til annar bölvaldur sem er miklu veri fyrir heimili. Áfengisdrykkja hefur aukist svo að hver 4- manna fjöldskylda lepur 1.lítra  af vínanda að meðaltali á hverjum einasta degi alla daga ársins. Þetta þýðir að inn á slíkt heimili eru keyptar 365 flöskur á ári. Hvaðan hef ég þessar heimildir? Þær má lesa með einföldum reikningi frá Hagstofu Íslands. Í Fréttablaðinu hér áður (24.júni 2004) sá ég örlitla frétt bls.8 undir fyrirsögninni ,,Svona erum við''. Fréttin lét lítið yfir sér einföld upptalning með heimild sína frá Hagstofu Íslands og var eftirfarandi: ,,Neysla áfengis á Íslandi, seldir lítrar á hvern íbúa á ári 1983 13 lítrar, 1993 31,24 lítrar,2003 66.50 lítrar''. Það væri þörf umræða að láta smámuni eins og reykingar almennings sitja á hakanum og taka þess í stað upp alvarlegri umræðu hvílklíkur friðarspillir áfengisdrykkjan er og bölvaldur allra á viðkomandi heimilum. Getur það virkilega verið að umræðan um þennan vágest fái jafnlitla umfjöllun hjá fjölmiðlum eins og raun ber vitni að því málefnið snertir of marga. Rétt í lokin heyrði ég að til stæði að banna fólki reykingar úti á svölum í fjölbýlishúsum því reykurinn stigi upp í íbúðirnar fyrir ofan og illu óþægindum. Og annað ég fæ ekki betur séð að búið sé að milda drykkjuviðurlög í hegningarlögum. Þar sem áður stóð óheimilt er að vera drukkinn á almannafæri sé orðið óheimilt er að vera mjög drukkin á almannafærai

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ 

B.N. (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 23:11

5 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Takk fyrir innleggið Baldvin.  Svo hvet ég þig bara til að horfa á
Í nærveru sálar á fimmtudaginn.
Bestu kveðjur til Reykjanesbæjar.

Kolbrún Baldursdóttir, 24.5.2008 kl. 09:06

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband