Engin stétt, hvorki stétt ţingmanna né önnur, er yfir ţađ hafin ađ fylgja skráđum siđareglum

Ţađ fćrist í fang ađ stéttir setji sér siđareglur.  Flest allar stéttir heilbrigđisgeirans hafa fylgt siđareglum áratugum saman.  Nú ţegar hafa fjölmargar ađrar stéttir sett sér ákveđnar siđareglur t.d. ţćr stéttir sem starfa innan fjármálageirans. 

Viđ gerđ siđareglna hafa íslenskar starfsstéttir gjarnan litiđ til nágrannalandanna. Norđurlandaţjóđirnar eru sennilega komnar lengra á veg međ ţróun siđareglna og vafalaust eru fleiri starfsstéttir ţar sem lúta skráđum siđareglum en hér á landi.

Alhliđa og almennar siđareglur eru nauđsynlegar bćđi fyrir ţá sem tilheyra viđkomandi stétt og ţá sem stéttin ţjónustar eđa á í samskiptum/ tengslum viđ.  Um er ađ rćđa ákveđinn ramma eđa vísir ađ leiđbeiningum hvađ varđar almenn málefni sem ţó stundum geta virst vera álitamál eđa virkađ sem vćru á gráu svćđi. Ţetta eru leiđbeiningar um hvar hin almennu samskiptamörk liggja í málum sem virka einföld en geta síđan ţegar á reynir veriđ flókin. Siđareglur eru til ţess fallnar ađ skerpa á hlutverkum og hjálpa ţeim sem eftir ţeim starfa ađ skilgreina sjálfa sig í starfinu svo ekki komi til hagsmunaárekstra eđa annarra óheppilegrar skörunar.  

Góđar siđareglur eru gulls ígildi. Ég fagna mjög ţeirri umrćđu og vinnu sem komin er af stađ viđ samningu siđareglna ţingmanna ţví engin stétt er yfir ţađ hafin ađ fylgja skráđum siđareglum.



 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir

Hjartanlega sammála.

Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 2.9.2008 kl. 20:56

2 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Örugglega er ţađ best ađ hafa gott form óg reglur á hlutum, en smá hliđarhopp eru nú allt í lagi svona í bland held ég.  Viđ er öll soddan skoppDuck 4  Duck 4 Duck 4 

Ásdís Sigurđardóttir, 2.9.2008 kl. 21:32

3 Smámynd: Einar Ţór Strand

Ţađ versta er ađ siđareglur bćta ekki slćmt siđferđi ţví miđur og eru ţví gagnslausar, en ţćr gefa afsökunina viđ brutum ekki siđareglurnar.

Einar Ţór Strand, 2.9.2008 kl. 21:35

4 Smámynd: Gísli Tryggvason

Góđ ábending; siđareglur geta reyndar líka orđiđ ó-siđareglur - eins og dćmin sanna frá sumum stéttum - en ţessar verđa samdar fyrir opnum tjöldum og međ virku ađhaldi og gćtu orđiđ til bóta. Neytendur ţurfa m.a. á ţví ađ halda ađ stjórnmálafólk sé ekki í vasanum á fyrirtćkjum.

Gísli Tryggvason, 2.9.2008 kl. 22:24

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er svo sammála ţér Kolbrún mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.9.2008 kl. 16:24

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband