Af afli og ábyrgð ...gegnsæ vinnubrögð og heiðarleiki

13mynf80110908_kolbr_n04_810275.jpgÉg vil leggja lóð á vogarskálina við endurreisn og uppbyggingu íslensku þjóðarinnar.

Ég vil nýta menntun mína, reynslu og þroska til að tryggja hagsmuni fólksins

Ég vil vera hluti af þeim hópi sem af afli og ábyrgð leitar leiða til að almenningur geti búið við stöðugleika og öryggi í framtíðinni.

Með réttsýni og innsæi að leiðarljósi vil ég vinna með þjóðinni. 

Sjá stefnumál á www.kolbrun.ws og www.profkjor.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gerður Pálma

Þú bíður fram krafta þína, menntun og skynsemi. 

 Mig langar mikið til þess að vita hvar þú stendur í Helguvíkur málinu og sömuleiðis hvernig þú lítur á það að Rio Tinto er að hugsa um að kaupa hlut Orkuveitunnar í HS.

Hvernig sérð þú þessi tengsl við þjóðarhag og framtíðina?

Gerður Pálma, 12.3.2009 kl. 20:27

2 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Mín stefnumál eru að finna á www.profkjor.is og www. kolbrun.ws þar sem ég reyni að lýsa afstöðu minni hvað varðar helstu mál. Ég hef ekki dekkað öll mál og er heldur ekki sérfræðingur á öllum sviðum. vona samt að menntun, reynsla og 50 ára þroski geti komið að einhverju gagni.

Helguvík.
Talað er um að ríkið semji við erlent fyrirtæki um að byggja álver. Með slíkum samningi skapast störf á byggingartímanum. Þau störf eru vel þegin í dag. Hins vegar erum við að leggja mörg egg í eina körfu með því að leggja áherslu á álfyrirtæki. Betra væri að dreifa þeirri orku sem við eigum í virkjunum okkar á mismunandi starfssemi t.d. gagnaver. 

Rio Tinto.
Varðandi  Rio Tinto og HS. Rio Tinto er ekki umhverfisvænsta fyrirtæki í heimi. Eru þeir ekki að falast eftir að kaupa framleiðsluhluta HS? en ekki dreifingarhlutann né virkjunarréttinn?

Ég verð bara að viðurkenna að ég hef ekki skoðað þetta mál ofan í kjölinn en mun vissulega setja mig inn í það mál fá ég umboð til þingstarfa. 

Kolbrún Baldursdóttir, 12.3.2009 kl. 20:42

3 Smámynd: Gerður Pálma

Ef þú berð hag þjóðarinnar fyrir brjósti eins og þú segir þá verður þú að kynna þér þessi mál og það strax. Núna er verið að samþykkja Helguvíkurálver,  það er bein atlaga að framtíðar velferð Íslands og er svik við alþjóðastefnu í umhverfismálum.

Eftir allt sem á undan er gengið hvernig dettur okkur í hug að leyfa fyrirtæki eins og RIO TINTO að eignast hlut í okkar orkuveitu á hvaða sviði sem er. 

Það eru fullt af tækifærum í byggingariðnaði í landinu án þess að til álvera komi, þau tækifæri eru ekki kynnt þar sem engin atvinnustefna hefur verið sett niður af stjórnvöldum. 

Gerður Pálma, 13.3.2009 kl. 08:05

4 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ágæta Kolbrún, ég óska þér alls góðs í prófkörinu og vona, að þú standir með þeim flokkssystkinum okkar, sem vilja ekki inngöngu Íslands í ESB.

Með góðri kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 13.3.2009 kl. 11:12

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband