Er græðgi í völd að valda usla eða er þetta bara draumurinn um að verða hinn eini sanni þjóðarbjargvættur?

Fyrirbærið valdabarátta er þekkt fyrir að leiða til þess að mörg sambönd splundrist og gildir þá einu hvernig þau eru til komin.

Nú velti ég fyrir mér hvort það sé valdabarátta sem sé um það bil að splundra ríkisvaldinu. Gerist hið versta mun það leiða til þess að hér ríki alger stjórnarkreppa.

Glötuð hugsun myndu einhverjir segja nú en eftir að hafa hlustað á Gunnar Helga, stjórnmálafræðing, þá virðist þessi hugsun allt eins geta lýst því sem gæti orðið, ef heldur sem horfir.

Hann sagði einfaldlega að ef þessi ríkisstjórn springur vegna Icesave mun sennilega verða reynt að mynda þjóðstjórn. Hins vegar sé það ekki líklegt að þjóðstjórn nái neitt frekar að afgreiða Icesave enda fleiri sem þurfa að ná saman.

Ennfremur sagði hann að ef kosið yrði aftur nú sem er vissulega leið, sé nokkuð ljóst hver niðurstaðan yrði þ.e. Samfylking og VG myndu ná endurkjöri.  Allt ferlið myndi hins vegar verða ein stór hneysa fyrir þjóðina, innanlands sem utan og gefa fátt annað til kynna en hversu brjáluð ólga og óreiða ríki í landinu.

Er það þetta sem raunverulega gæti gerst?

Telur stjórnarandstaðan, að með því að vera á bremsunni í Icesave málinu með þeim hætti sem verið hefur, muni þeir komast til valda fljótt og vel?

Nú hljóta þjóðarhagsmunir að gilda umfram flokkshagsmuni og það í öllum flokkum? Ef ekki nú þá aldrei skyldi maður halda.

Ekkert af því sem er að gerast nú á sviði þjóðmálanna er hægt að leggja að jöfnu eða bera saman við það sem gerðist í borginni sbr. REI og allt það sem fylgdi í kjölfarið.

Ef einhver sem nú situr í stjórnarandstöðu lætur sér detta í hug að ef þessi ríkisstjórn yrði svo óvinsæl vegna Icesave-málsins, hrópi fólkið á stjórnarandstöðuflokkana að redda málum, tel ég þann hinn sama vera á alvarlegum villigötum. Það er deginum ljósara að það er enginn einn flokkur/forysta flokks sem getur nú skotist upp í stjörnuhimininn og orðið einhver allsherjar þjóðarreddari af því að hann/þeir séu svo klárir en hinir svo heimskir. 

Sá eða sú sem  hugsar svona í þessum erfiðum kringumstæðum er að leika sér að eldinum á kostnað fólksins í landinu til þess eins að fullnægja flokkshagsmunum eða valdagræðgi?

Það er nú eða aldrei sem afgreiða þarf þetta hörmunga mál eigi þjóðin ekki að missa sprotann úr höndunum sökum vanhæfni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Þetta er hugrakur pistill hjá þér og hárréttur.

Helgi Jóhann Hauksson, 10.8.2009 kl. 22:32

2 Smámynd:

Þessi ríkisstjórn er jafn vanhæf til þessara verka og hægristjórnin. Fólkið í ríkisstjórninni á ekkert að koma nálægt samningagerðinni heldur láta óháðum, lög- og fjármálafróðum einstaklingum eftir það erfiða verkefni.

, 10.8.2009 kl. 22:38

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér finnst fólk vera að blanda saman tveimur ólíkum hlutum.  Að stjórnarandstaðar sé að reyna að bola ríkisstjórninni frá, og hafna eða samþykkja Icesave.  Ég tel að stjórnarandstaðan og nokkrir vinstri grænir geri sér ljóst að það eru til aðrar og heppilegri leiðir.  Mistök stjórnarinnar er að sjá það ekki og hlusta ekki. 

Því miður.  Ég er ánægð með þann mótþróa sem ríkisstjórnin fær í þessu máli, því ég er sannfærð um að þetta er hrikaleg gjörð og við eigum ekki að fara þessa leið.

En ég vil ekki þjóðstjórn.  Ég vil Utanþingsstjórn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.8.2009 kl. 23:41

4 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Dagný, ríkisstjórnin kom ekki nálægt samningagerðinni og margir gagnrýna hana einmitt fyrir það. Það var algerlega nefnd embættismanna og óháðra sérfræðigna innlendra og erlendra í lögum og fjármálum sem sömdu fyrir okkur. - Og þetta er niðurstaðan, að þeirra sögn besti fáanlegi samningur í stöðunni.

Helgi Jóhann Hauksson, 10.8.2009 kl. 23:55

5 identicon

SAMSTÖÐUFUNDUR á fimmtudaginn fyrir alla fjölskylduna kl. 17:00 á Austurvelli! ---- Við megum  ekki vera sjálfstæðismenn og vinstri græn og framsóknarmenn og svo framvegis.  Á fimmtudaginn verðum við öll að vera Íslendingar.

Á fimmtudaginn er áætlað að birtist innanlands og utanlands grein sem fjallar um hversu stór Icesave byrðin er í raun og veru fyrir þetta litla íslenska hagkerfi og tekur samanburð við það hvað þessar tölur myndu þýða t.d. fyrir Bretland eða Holland eða Norðurlöndin hlutfallslega. Þessi grein er hugsuð í beinu sambandi við samstöðufundinn til að sýna fram á ósanngirni þess að Íslendingar taki þennan skell þegjandi og hljóðalaust.  Þannig getur þetta tvennt saman orðið grunnur að meiri skilningi á stöðu Íslands erlendis.

http://www.facebook.com:80/InDefence

Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir (IP-tala skráð) 11.8.2009 kl. 00:12

6 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Okkur skortir

mannsskap í samningagerð og aðra endurnýjun.

Hins vegar er það rétt hjá þér Kolbrún, að þjóðarhagsmunir ættu nú að ráða fyrir pólitískum -en gera það því miður ekki.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 11.8.2009 kl. 06:57

7 Smámynd: Sjóveikur

Endilega komið þessu til skila til sem flestra gott fólk við á dekkinu erum búin að fá nóg ´

http://www.youtube.com/watch?v=vvs5kOZ-VKw

Besta kveðja frá www.icelandicfury.com munum nota þann stuðning sem kemur inn fyrir niðurhal á tónlist til að skila af okkur "rannsóknum og reynslu" á ævintýrinu "Útgerð á Íslandi" í samanburði við aðrar þjóðir og meðferð hráefnis frá fiskveiðum Íslenskra sjómanna/kvenna

Byltingin étur börnin sín ! Lifi Byltingin !!!

sjoveikur

Sjóveikur, 12.8.2009 kl. 21:22

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband