Bloggfærslur mánaðarins, maí 2024
Galið umferðarástand á efri hluta Breiðholtsbrautar
29.5.2024 | 10:43
Ástandið á Breiðholtsbraut frá Jafnaseli að Rauðavatni er skuggalegt um þessar mundir. Það voru stór mistök að byrja ekki á að breikka þennan kafla Breiðholtsbrautar áður en ráðist var í framkvæmd 3ja áfanga Arnarnesvegar. Þetta ástand á eftir að vara lengi og var það slæmt fyrir. Hver ber á þessu aðalábyrgðina? Vandinn er slíkur að oft er ekki hægt að komast út úr hringtorginu frá Suðurlandsvegi til að beygja inn til hægri inn á Breiðholtsbrautina vegna bílateppu. Þrengingar eru miklar vegna framkvæmda við Arnarnesveg. Þetta ástand skapar slysahættu svo ekki sé minnst á umferðarkraðakið sem þarna myndast á háannatíma. Þetta var auðvitað fyrirsjáanlegt. Það dugar ekki að breikka aðeins smá bút af Breiðholtsbrautinni að Arnarnesvegi heldur verður að breikka Breiðholtsbrautina alla leið að Rauðavatni ef vel á að vera.
Ákall borgarbúa um breikkun er hunsað. Þetta bitnar á öllum þeim sem aka þessa leið, margir á leið út úr bænum og aðrir á leið inn í borgina. Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram tillögu 2021 um að skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar þrýsti á Vegagerðina með að fá viðræður um breikkun Breiðholtsbrautar frá Jafnaseli að Rauðavatni". Tillagan var felld af meirihlutanum.
Eftirfarandi tillaga er lögð fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 29. maí 2024:
Tillaga Flokks fólksins um að gerð verði úttekt á þeirri ákvörðun að byrja á 3ja áfanga Arnanesvegar áður en Breiðholtsbrautin milli Jafnasels og Rauðavant var tvöfölduð. Með því að byrja fyrst á svo stórum framkvæmdum sem Arnarnesvegurinn er áður en Breiðholtsbrautin var tvöfölduð voru gerð alvarleg mistök sem einhver þarf að bera ábyrgð á.
Greinargerð
Á þessum kafla ríki nú ófremdarástand. Umferðarteppur og tafir vegna þeirra eru þær mestu sem sést hefur á stað þar sem umferðarþungi er gríðarlegur og yfir svo langan tíma sem raun ber vitni. Vandinn er slíkur að oft er ekki hægt að komast út úr hringtorginu frá Suðurlandsvegi til að beygja inn til hægri inn á Breiðholtsbrautina. Þrengingar eru miklar vegna framkvæmda við Arnarnesveg. Þetta ástand skapar mikla slysahættu svo ekki sé minnst á umferðarkraðak á háannatímanum. Ákall borgarbúa um breikkun hefur verið hunsað. Þetta bitnar á öllum þeim sem aka þessa leið, margir á leið út úr bænum og aðrir á leið inn í borgina. Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram tillögu 2021 um að skipulagsyfirvöld Reykjavíkurborgar þrýsti á Vegagerðina með að fá viðræður um breikkun Breiðholtsbrautar frá Jafnaseli að Rauðavatni". Tillagan var felld af meirihlutanum.
Þetta eru þau allra grófustu samráðssvik sem ég hef orðið vitni að hjá meirihlutanum í borginni á þeim 6 árum sem ég hef setið í borgarstjórn. Flokkur fólksins hefur séð ótal dæmi þess að meint samráð sem meirihlutinn segist hafa við borgarbúa er aðeins sýndarsamráð. En nú tekur steininn úr. Ég spyr eins og greinarhöfundur, má þetta bara?
https://www.visir.is/g/20242570792d/reykjavikurborg-svikur-ibua-laugardals
Engin bílastæði við Dalslaug
15.5.2024 | 15:17
Flokki fólksins hefur borist ábending frá fólki um sára vöntun bílastæða við Dalslaug. Aðkomugestir í sundlaugina þarf að ganga dágóðan spotta, hafandi neyðst til að leggja bíl sínum einhvers staðar inn í hverfi eða upp á kant því engin bílastæði eru við laugina. Sumir eru með stóran barnahóp auk sundfarangurs eins og gengur. Hér hafa orðið stór mistök í skipulagi sem finna þarf lausn á.
Flokkur fólksins lagði inn þessa tillögu í morgun á fundi umhverfis- og skipulagsráðs.
Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu um að bílastæðum verði fjölgað við Dalslaug í Úlfarsárdal:
Flokkur fólksins leggur til að bílastæðum verði fjölgað við Dalslaug í Úlfarsárdal og íþróttasvæðið þar í kring. Við laugina eru allt of fá stæði sem skapar öngþveiti.
Greinargerð
Örfá bílastæði eru við Dalslaug og kvarta íbúar mikið yfir því. Sundlaugaverðir segjast fá kvartanir á hverjum degi vegna þessa bílastæðaskorts. Nokkur fjöldi bílastæða er við íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal. Þau eru hins vegar mjög oft þéttsetin bæði af sundlaugargestum og íþróttaiðkendum. Þegar haldin eru fótboltamót eða einstaka fótboltaleikir spilaðir verður algjört öngþveiti á svæðinu. Bílum er lagt upp á umferðareyjar á grasbala og inn í næstu íbúðargötur. Þessi staða veldur íbúum miklu ónæði. Það er greinilega ekki gert ráð fyrir að íbúar úr öðrum hverfum borgarinnar sæki sér þjónustu við íþróttamiðstöðina eða njóti sundlaugarinnar í Úlfarsárdal. Úr þessu þarf að bæta hið snarasta. Foreldrar sem koma með börn sín, stundum mörg og tilheyrandi sundfarangur í laugina þurfa iðulega að ganga langa vegalengd frá bíl að laug vegna þess að þau fáu stæði sem eru i boði eru fullsetin.
Flokkur fólksins mun ekki samþykkja að hækka leigu hjá Félagsbústöðum
10.5.2024 | 11:12
Félagsbústaðir eru B-hluta fyrirtæki Reykjavíkurborgar og er óhagnaðardrifið félag. Viðskiptamódel Félagsbústaða gengur ekki upp miðað við núverandi forsendur sem er að
rekstur félagsins skuli vera sjálfbær. Í umræðunni er að hækka leiguna. Félagsbústaðir
standa ekki undir greiðslubyrði lána að óbreyttu. Það þarf atkvæði meirihluta fulltrúa í velferðarráði til að hækka leiguna hjá Félagsbústöðum. Flokkur fólksins sem á þar fulltrúa mun ekki samþykkja að
leiga verði hækkuð til þess að halda þessu fyrirtæki á floti. Finna þarf aðrar leiðir eða breyta viðskiptamódelinu. Skoða mætti að styrkja Félagsbústaði með öðrum hætti en þá er það vissulega í skjön við markmið félagsins þ.e. að verða sjálfbært. En atkvæði minnihlutans mega sín lítils því meirihlutinn í velferðarráði er með sín meirihlutaatkvæði. Taki meirihlutinn ákvörðun um að hækka leigu félagslegum íbúðum geta þau gert það sama hvernig minnihlutinn greiðir atkvæði.
Aðeins verið að blekkja
Enn og aftur er borgarbúum boðið upp á hálfgert gerviuppgjör hjá Félagsbústöðum Reykjavíkurborgar. Í því sambandi er vísað til matsbreytinga fjárfestingaeigna í ársreikningi Félagsbústaða Reykjavíkurborgar. Í þessu felst að bókfært verð íbúða Félagsbústaða er endurmetið samkvæmt matsbreytingum á almennum íbúðamarkaði. Aukið verðmæti þeirra er ár hvert fært sem hagnaður í ársreikningi. Þessi reikningsskilaaðferð hefur margsinnis verið gagnrýnd af Flokki fólksins og fleirum. Matsbreytingar námu um 5 milljörðum króna á síðasta ári og eru þær færðar sem hagnaður sem er einungis tilkominn vegna hækkunar á virði fasteignamats eigna Félagsbústaða. Hér er því um gervikrónur að ræða því íbúðir Félagsbústaða verða aldrei seldar á almennum markaði.
Áður var verðmæti eigna Félagsbústaða bókfært á kostnaðarverði en ekki samkvæmt reiknuðu gangvirði samkvæmt verðþróun á almennum markaði. Þegar harðna fór á dalnum í fjármálum var gripið til þess ráðs að skipta um matsaðferð til að láta stöðuna líta skár út. Með þessu er verið að slá ryki í augu borgarbúa til að láta svo líta út að afkoman sé betri en hún er í raun og veru.
Ef eignir Félagsbústaða væru metnar á kostnaðarverði fremur en gangvirði á almennum markaði þá kæmi skýrt í ljós hve illa fjárhagslega Félagsbústaðir eru í raun staddir. Reikningsskil eiga að sýna fjárhagslega stöðu fyrirtækisins (rekstur og efnahag) eins og hún er í raun og veru en ekki vera nýtt til að setja upp einhvern gerviveruleika. Það væri alveg eins hægt að reikna alla skóla borgarinnar, sundlaugar og íþróttahús upp til einhvers matsverðs til að breyta ,,efnahagslegri ásýnd borgarsjóðs. Rekstur félagslegs húsnæðis er lögbundið skylduverkefni sveitarfélaga og því verða allar eignir Félagsbústaða aldrei seldar allar í einu.
Hægt er að fullyrða að með þessari reikningsskilaaðferð sé ekki aðeins verið að slá ryki í augu borgarbúa, heldur að farið sé á svig við alþjóðalega reikningsskilastaðla sem þó er fullyrt að hafðir séu að leiðarljósi í ársreikningi Félagsbústaða. Í ársreikningi segir fullum fetum að hann sé gerður í samræmi við IFRS reikningsskilastaðalinn (International Financial Reporting Standards) sem byggir á fjórum grundvallaratriðum en þau eru skýrleiki (clarity), mikilvægi (relevance), áreiðanleiki (reliability) og samanburðarhæfni (comparability). Það er mjög áhugavert að velta fyrir sér hvort ársreikningur Félagsbústaða standist þær kröfur.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins
Greinin er birt á visi.is 10. maí 2024
Ársreikningurinn fegraður
7.5.2024 | 15:55
Mér hefur þótt meirihlutinn í borgarstjórn vilja túlka Ársreikning 2023 í ansi björtu ljósi þegar raunveruleikinn er ekki alveg svo bjartur eftir allt saman. Í dag hefur átt sér stað fyrri umræða um Reikninginn. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lagt áherslu á eftirfarandi atriði í Reikningnum: