Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2024
Torfþakið varð að mýri
30.7.2024 | 08:55
Mál Brákarborgar á Kleppsvegi 150-152 er allt hið ótrúlegasta. Ljóst er að mistök voru gerð í hönnun eða byggingarframkvæmd leikskólans en ekki liggur fyrir hver beri ábyrgð. Komið hefur í ljós að burðurinn sem heldur uppi þakinu er ekki í samræmi við núgildandi staðla sem leitt hefur m.a. til að hurðir hafa skekkst í dyrakörmum.
Hér er um alvarleg mistök að ræða sem kostar gríðarlegt fjármagn og mun koma illa við borgarsjóð og borgarbúa. Fulltrúi Flokks fólksins mun vilja fá upplýsingar um hvernig þetta gat gerst í ljósi þeirra þekkingar sem liggja fyrir í byggingariðnaði. Talið er að kostnaður muni hlaupa á tugum milljóna. Flokkur fólksins mun einnig spyrja um hvað þetta verkefni kostar í heild sinni þegar upp er staðið? Hver ber á þessu ábyrgð? Er kannski sambærilegur vandi í uppsiglingu í fleiri byggingum sem skarta eiga torfþökum? Af hverju torfþök núna? Torfið hægir vissulega á rennsli vatns ofan í frárennsliskerfin sem geta sprungið. Hafa skal í huga að sú mikla þétting byggðar víða í borginni eykur álag á frárennsliskerfi sem er ekki hannað nema fyrir ákveðinn mannfjölda.
Þakið varð að mýri
Fulltrúi Flokks fólksins lýsti yfir áhyggjum sínum á þeim tíma sem hönnunartillagan var kynnt, áhyggjur sem lutu að gerð torfþaks. Flokkur fólksins lagði þá fram viðvörunarbókun. Á húsið var lagt torfþak sem reyndist þyngra en reiknað var með og tilgreint var á teikningum.
Reikna má með að sérfræðingar á skipulags-, hönnunar- og arkitektasviði viti að vatn er þungt. Benda má á að 10 mm úrkoma, sem er ósköp venjuleg í Reykjavík, eru 10 lítrar eða 10-kg á fermetra. Losna þarf fljótt við það vatn ef það er á þaki. Það gengur illa á flötu þaki því að vatnið má ekki renna niður í bygginguna. Vatnið þarf að færast frá miðju þaksins út í rennur sem tekur óratíma. Því má segja að með torfþakinu á Brákarborg hafi verið mynduð mýri. Torfþök fyrr á öldum voru brött. Þá skyldu menn að vatnið þyrfti að renna fljótt brott. Sú þekking kann að hafa glatast meðal hönnuða?
Ótímabær opnun og verðlaun í ofanálag
Það sem gerir málið sérlega vandræðalegt er að hönnun Brákarborgar fékk hönnunarverðlaunin Grænu skófluna sem borgarstjóri veitti stoltur viðtöku. Leikskólinn Brákarborg var opnaður löngu áður en hann var tilbúinn til að hýsa starfsemina. Ástand húsnæðisins var með öllu ófullnægjandi. Vankantar voru m.a. á loftræstikerfi og ljósabúnaði. En það í sjálfu sér hefur ekki að gera með torfþakið og dómgreindarleysið að baki þeirri ákvörðun. Í svari skóla- og frístundasviðs við fyrirspurn um af hverju lá svo mikið á að taka leikskólann í notkun áður en framkvæmdum var lokið segir að "neyðarstaða væri komin upp varðandi annan leikskóla sem þurfti að flytja úr sínu húsnæði vegna rakamála og þurfti á eldra húsnæði Brákarborgar að halda".
Nú þarf að flytja leikskólann Brákarborg í húsnæði í Ármúla, skrifstofuhúsnæði sem engan vegin er ásættanlegur staður fyrir börn. Húsnæðið sem um ræðir er í Ármúla 28-30 og hefur áður hýst grunnskólastarfsemi. Óþægindin koma illa við börnin á Brákarborg og foreldra þeirra.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur
Virkja þarf þjónustustefnu Strætó bs.
11.7.2024 | 09:18
Á fundi borgarráðs hyggst ég leggja fram tillögu um að gerð verði óháð úttekt á þjónustu Strætó bs., sérstaklega með tilliti til þjónustulundar, viðmóts og sveigjanleika í garð notenda Strætó bs. samkvæmt samþykktri þjónustustefnu byggðasamlagsins. Mikilvægt er að skoða einnig stjórnendur og hæfni þeirra til stjórnunar fyrirtækisins. Skoðað verði sérstaklega þætti eins og hvort starfsfólk þ.m.t. vagnstjórar þekki hlutverk, stefnu og gildi fyrirtækisins. Einnig hvort starfsfólk:
-sýni drifkraft í störfum sínum með frumkvæði, kjark og þor að leiðarljósi?
-vinni vel saman að hagsmunum og framtíðarsýn Strætó og mynda þannig sterka liðsheild?
-skapi traust þeirra sem reiða sig á þjónustu Strætó og sýna áreiðanleika og ábyrgð í verki?
-sýni viðskiptavinum jákvætt viðmót og kurteisa framkomu?
-eru vingjarnleg og hjálpfús gagnvart öllum viðskiptavinum?
-geti veitt upplýsingar um starfsemi Strætó?
-beri virðingu fyrir ásýnd Strætó og umhverfi_
Þessi tillaga er lögð fram í ljósi fjölmargra kvartanna, sumar hverjar alvarlegar, sem berast reglulega til Strætó bs. Strætó er með þjónustustefnu sem virðist samkvæmt fjölda kvartanna vera meira orð á blaði en raunveruleiki. Markmið þjónustustefnunnar er m.a. að skapa traust notenda, sýna áreiðanleika og ábyrgð í verki og sýna viðskiptavinum jákvætt viðmót og kurteisa framkomu sem og að vera vingjarnleg og hjálpfús gagnvart öllum viðskiptavinum. Á þessu er pottur brotinn. Það er þess vegna mikilvægt að óháður utanaðkomandi aðili verði fenginn til að rannsaka hverju það veldur að Strætó bs. gangi svo illa að fylgja þjónustustefnunni sem raun ber vitni. Reglulega berast fréttir af slæmri framkomu Strætó bs gagnvart farþegum. Nýlegt dæmi er að 10 ára stúlku var vísað úr strætisvagni á miðri leið að því er virðist að tilefnislausu. Engar skýringar hafa enn verið gefnar á atvikinu.