Náðhúsið kostaði 46 milljónir

Braggablúsinn, bókun:
Braggaverkefnið óx stjórnlaust, frá 155 milljónum sem var áætlunin í 404 milljónir. Þetta er óásættanlegt. Hér hafa verð gerð stór mistök og eins og þetta lítur út núna mun þetta koma verulega við pyngju borgarbúa á meðan enn er húsnæðisvandi og biðlistar í flesta þjónustu s.s. heimaþjónustu aldraðra og sálfræðiþjónustu barna. Rétt er að nefna að um 200 manns með heilabilun hafa ekki hjúkrunarrými.
 
Borgarfulltrúa Flokks fólksins hefur fundið það á fjölmörgum að mikil óánægja er með þessa framkvæmd, mörgum finnst þetta ekki vera í neinu samhengi við dapran raunveruleika sem margir búa við hér í Reykjavík. Fjölmargt í þessu ferli ber keim af fljótræði og vanhugsun auk þess sem borgin tók ákvörðun um að opna fyrir krana. Bara rétt til að almenningur átti sig á því bruðli sem hér átti sér stað kostaði náðhúsið eitt og sér kr. 46. milljónir.
 
Í kjölfarið kom Flokkur fólksins með eftirfarandi tillögu:
Flokkur fólksins leggur til að fundnar verði leiðir til að leiðrétta þau mistök sem orðið hafa í öllu ferli er varðar uppbyggingu/byggingu umrædds bragga. Á þetta verkefni opnaði borgin fyrir krana, gaf út opinn tékka. Þessar leiðir sem borgarfulltrúinn vill að fundnar verði miðast að því að HR og Minjastofnun greiði þann umframkostnað sem orðið hefur á þessu verkefni. Áætlunin nam 155 milljónir en endaði í 404 milljónum. Flokkur fólksins er ekki tilbúinn að una þessari niðurstöðu f.h. borgarbúa og krefst þess að máli linni ekki fyrr en þeir aðilar sem hér eru nefndir og eru ábyrgir fyrir útþenslu verkefnisins greiði þennan umframkostnað eins og eðlilegt þykir.

Bloggfærslur 20. september 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband