Viðbrögð meirihlutans lýsa ótta og vanmætti

Tillögu um að vísa skýrslu Innri endurskoðunar um braggann til þar til bærra yfirvalda hefur verið felld af meirihlutanum. Í bókun okkar Flokks fólksins og Miðflokksins er eftirfarandi:

Það er ill-skiljanlegt því það er hagur okkar allra að þetta mál verði hafið yfir allan vafa þegar kemur að meintu misferli. Borgarbúar eiga rétt á að þetta mál verði rannsakað til hlítar og að engir lausir endar verði skildir eftir. Við berum ábyrgð sem kjörnir fulltrúar og eftirlitshlutverk okkar með fjárreiðum borgarinnar er ríkt. Þessu eftirlitshlutverki erum við að sinna með tillögu þessari.  Þetta mál hefur misboðið fjölmörgum Reykvíkingum og  landsmönnum einnig. Meirihlutinn hefði átt að taka þessari tillögu fagnandi og sterkast hefði verið ef hann sjálfur hefði átt frumkvæðið af tillögu sem þessari. Þess í stað er brugðist illa við eins og birst hefur á fundi borgarstjórnar og í fjölmiðlum. Viðbrögðin lýsa ótta og vanmætti. Það er mat okkar að eina leiðin til að ljúka þessu máli fyrir alvöru er að fá úrskurð þar til bærra yfirvalda á hvort misferli kunni að hafa átt sér stað. Hvað sem öllu þessu líður stendur eftir að svara því hver ætlar að taka hina pólitísku ábyrgð í þessu máli.

 

 

 


Kæra nafna mín Kolbrún Bergþórsdóttir, innra með mér býr hvorki heift né ofsi

Kæra nafna. Mig langar að vísa í leiðara sem þú skrifar í Fréttablaðið í morgun og segja þér að innra með mér finn ég hvorki til heiftar né ofsa í garð meirihlutans í tengslum við braggamálið og allt sem snýr að því. Ef skilgreina á einhverjar tilfinningar í þessu sambandi er það kannski helst vonbrigði og sorg vegna þess hvernig farið hefur verið með fé borgarbúa og vegna allrar þeirra misfellna sem nefndar eru í skýrslu Innri endurskoðunar. Tillaga Flokks fólksins og Miðflokksins að vísa skýrslu Innri endurskoðunar til þar til bærra yfirvalda til frekari yfirferðar og rannsóknar er ekki gert til að klekkja á neinum í pólitískum tilgangi.

Auðvitað velta margir fyrir sér hvort hér sé um misferli að ræða. Sveitarstjórnarlög hafa verið brotin, innkaupareglur borgarinnar brotnar og skoða þarf hvort lög um skjalavörslu hafa mögulega verið brotin. Ég sé ekki betur en að siðareglur hafi einnig verið brotnar þótt það teljist ekki refsivert. Borgarstjórn öll ætti að taka undir tillögu Flokks fólksins og Miðflokksins að fela þar til bærum yfirvöldum frekari yfirferð á málinu og rannsókn. Það er einnig mikilvægt að fela sama embætti að fara yfir niðurstöður Borgarskjalasafns á skjalamálum í málinu þegar þær liggja fyrir. Við verðum að hnýta alla lausa enda og gera allt til að geta byrjað að byggja aftur upp traust borgarbúa á kerfinu og fólkinu sem stýrir því.


Bloggfærslur 15. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband