70 milljónir í uppgerð á minjum

Í þessu braggamáli eru sannarlega ekki öll kurl komin til grafar. Við höldum því áfram að grafa.

Fyrirspurn frá F og M sem lögð var fram í morgun á fundi borgarráðs:

Fram hefur komið að 70 milljónir fóru í uppgerð á minjum í tengslum við braggann í Nauthólsvík. 

Óskað er eftir upplýsingum um hvað nákvæmlega þessar 70 milljónir fóru í vegna uppgerðar á minjum í braggaverkefninu. Óskað er eftir nákvæmum lista yfir hvað skilgreint var sem minjar og sundurliðun á uppgerð þeirra.


Reynt að berja niður þá staðreynd að tölvupósti í braggamálinu var eytt

Borgarfulltrúi meirihlutans hefur undanfarna daga, m.a. í Silfrinu og á fleiri fjölmiðlum sem og ítrekað á fundi borgarstjórnar s.l. þriðjudag fullyrt að póstum í braggamálinu hafi EKKI verið eytt eins og stendur í skýrslu Innri endurskoðunar. Ég og fleiri í minnihlutanum voru ásökuð um rangfærslur, bull og rugl og ýmislegt annað óviðurkvæmilegt var haft um okkur  þegar við ræddum um að tölvupósti var eytt. Reynt var margsinnis að benda borgarfulltrúanum á að lesa betur skýrslu Innri endurskoðunar en allt kom fyrir ekki. Ég tók það að mér að senda fyrirspurn til Innri endurskoðunar til að fá þetta enn einu sinni staðfest það sem stendur í Skýrslunni. 

Í fyrradag barst tölvupóstur frá Innri endurskoðanda þess efnis að í úthólf fyrrverandi skrifstofustjóra og úthólf og innhólf verkefnastjórans hafi vantað tölvupóst frá fyrri hluta verktímabilsins. Staðfest er svo það sé nú hafið yfir allan vafa að tölvupósti var eytt úr úthólfi skrifstofustjórans. Einnig hefur verið staðfest að öllum tölvupósti í pósthólfi verkefna-stjórans fyrir október 2017, sbr. hér fyrir ofan, hefur verið eytt.

Innri endurskoðun getur hins vegar ekki staðfest hvort meðal hinna eyddu pósta hafi verið tölvupóstur varðandi Nauthólsveg 100. Enn fremur skoðaði Innri endurskoðun skjöl varðandi framkvæmdirnar að Nauthólsvegi 100 í skjalavörslukerfi borgarinnar, eins og fram kemur á bls. 76 í skýrslunni, og þar voru einungis örfáir tölvupóstar vistaðir.

 


Bloggfærslur 17. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband