Hvernig kemst ég ađ ţví ađ barniđ mitt er lagt í einelti?

Nokkur einkenni til viđvörunar:
Ţegar barniđ
*kemur heim međ rifin eđa skítug föt, skemmt skóladót eđa hefur „týnt“ einhverju án ţess ađ geta gert almennilega grein fyrir ţví sem gerđist,
*er međ mar, sár eđa skurđi án ţess ađ geta gefiđ trúverđuga skýringu á ţeim,
*sýnist vera hrćtt viđ eđa langar ekki í skólann
*missir áhuga á náminu, einkunnir versna
*hćttir ađ koma heim međ bekkjarfélaga ađ loknum skóla
*velur ađra leiđ en venjulega heim úr skólanum
*virđist óhamingjusamt, dapurt, og kvíđafullt
*kvartar yfir magaverk, tapar matarlystinni
*sefur ekki eins vel, er grátgjarnt og dreymir illa
*tekur pening í leyfisleysi, virđist ţurfa meiri pening en venjulega án ţess ađ geta útskýrt almennilega í hvađ er eytt

Afar brýnt er ađ leiđa ekki ţessa ţćtti hjá sér heldur kanna hvađa orsakir geti legiđ ađ baki. Sé einelti í gangi hverfur ţađ sjaldnast af sjálfu sér. Skađsemi eineltis sem stađiđ hefur yfir lengi getur fylgt barninu alla ćvi. Áhrifin eru djúpstćđ og lýsa sér oftar en ekki í brotinni sjáflsmynd og ţunglyndi.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurţórsson.

Ţarfleg ámynning, takk fyrir mig.

Sigfús Sigurţórsson., 3.4.2007 kl. 12:13

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Tek undir ţessa áminningu.

Haukur Nikulásson, 3.4.2007 kl. 13:02

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

ţađ er gott ađ fá svona áminniningu takk fyrir.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.4.2007 kl. 13:33

4 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ţađ er gott og nauđsynlegt ađ taka ţetta fram. Ţađ eru enn fleiri sem ţekkja til eineltis en fólk almennt gerir sér grein fyrir ađ ég held.

Inga Lára Helgadóttir, 3.4.2007 kl. 17:49

5 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

já, kennararnir eru í sumum tilfellum einna manna verstir

Inga Lára Helgadóttir, 4.4.2007 kl. 08:33

6 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Margir hafa sögur um einelti af hálfu kennara ađ segja frá og er ég í ţeim hópi. Ég held ég hafi sjaldan veriđ eins hrćdd viđ nokkra manneskju á grunnskólaárunum en kennara minn í Melaskóla. Ađ lokum var ég látin skipta um bekk ţví ég ţorđi ekki lengur í skólann. Mér er oft hugsađ til ţessarar konu, veit ekki einu sinni hvort hún er á lífi. Hún hafđi gefiđ út ţá skipun ađ ekki mćtti skrifa beggja vegna á blađsíđurnar. Móđir mín sem var einstćđ međ 4 börn var hissa á ţessu og sá einnig ofsjónum í ađ ţurfa ađ kaupa óţarflega margar stílabćkur svo ég ákvađ bara ađ skrifa beggja vegna á blađsíđuna. Ţegar kennarinn sá ţetta tryltist hún og dúndrađi bókinni í hausinn á mér. Vá hvađ ég varđ hrćdd. Hélt ég myndi nú aldrei eiga eftir ađ skrifa um ţetta svona opinberlega. Svo var ţađ nú einn í bekknum sem var iđnastur viđ ađ kalla mig „Kolla risi“, ég var nefnilega hrikalega stór (orđin 1.75 12 ára og mjó eftir ţví). Ţessi einstaklingur er nú grunnskólakennari í dag. Já svona er ţetta mađur fćr ţetta allt í hausinn aftur einhvern tímann í lífinu. Ég tek ţađ fram ađ ég hef sjálf ekkert allaf veriđ einhver engill heldur.

Kolbrún Baldursdóttir, 4.4.2007 kl. 09:18

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Einelti er skelfilegt fyrirbćri.  Ég er alltaf á verđi međ stubbinn minn.  Um daginn kom hann heim í lögreglubíl.  Ég var ađ tala í símann og lögreglulmađurinn ósköp ljúfur mađur beiđ rólegur međan ég lauk talinu. svo sagđi hann; ég er bara ađ skila honum heim, hann var í einhverjum erfiđleikum eftir skólann, og hann bađ mig ađ aka sér heim.  Ţessir strákar sagđi hann, eru oft til vandrćđa, međal annars á minn drengur stundum í erfiđleikum vegna ţeirra. Ég ţakkađi honum fyrir. Og svo kom í ljós ađ minn stubbur og tveir ađrir voru á leiđinni heim úr skólanum, og eldri drengir réđust á einn ţeirra, minn fór til ađ "hjálpa"  og var dregin niđur og rifin af honum gleraugun. 

Ég hafđi strax samband viđ kennarana og sagđi frá ţessu.  Ţađ var ákveđiđ ađ halda fund međ foreldrum ţessara drengja og hinna.  Ţađ hefur ekki orđiđ úr ţví ennţá.  En verđur vonandi eftir páska.  Svona ástand er bara óţolandi.

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 4.4.2007 kl. 11:14

8 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

'Eg er svo ánćgđ ađ geta sagt ţađ ađ ég hef aldrei lagt í einelti ekki tekiđ ţátt í strýđni eđa slíku. Hef ekki veriđ í ađstöđu til ţess, en ţegar kallađ var á mig og beđin ađ vera međ, ţá tók ég aldrei undir.

Inga Lára Helgadóttir, 4.4.2007 kl. 11:35

9 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Góđ áminning, ţađ er nauđsynlegt ađ vera glađvakandi fyrir ţessu.

María Anna P Kristjánsdóttir, 4.4.2007 kl. 16:48

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband