Reynt ađ berja niđur ţá stađreynd ađ tölvupósti í braggamálinu var eytt

Borgarfulltrúi meirihlutans hefur undanfarna daga, m.a. í Silfrinu og á fleiri fjölmiđlum sem og ítrekađ á fundi borgarstjórnar s.l. ţriđjudag fullyrt ađ póstum í braggamálinu hafi EKKI veriđ eytt eins og stendur í skýrslu Innri endurskođunar. Ég og fleiri í minnihlutanum voru ásökuđ um rangfćrslur, bull og rugl og ýmislegt annađ óviđurkvćmilegt var haft um okkur  ţegar viđ rćddum um ađ tölvupósti var eytt. Reynt var margsinnis ađ benda borgarfulltrúanum á ađ lesa betur skýrslu Innri endurskođunar en allt kom fyrir ekki. Ég tók ţađ ađ mér ađ senda fyrirspurn til Innri endurskođunar til ađ fá ţetta enn einu sinni stađfest ţađ sem stendur í Skýrslunni. 

Í fyrradag barst tölvupóstur frá Innri endurskođanda ţess efnis ađ í úthólf fyrrverandi skrifstofustjóra og úthólf og innhólf verkefnastjórans hafi vantađ tölvupóst frá fyrri hluta verktímabilsins. Stađfest er svo ţađ sé nú hafiđ yfir allan vafa ađ tölvupósti var eytt úr úthólfi skrifstofustjórans. Einnig hefur veriđ stađfest ađ öllum tölvupósti í pósthólfi verkefna-stjórans fyrir október 2017, sbr. hér fyrir ofan, hefur veriđ eytt.

Innri endurskođun getur hins vegar ekki stađfest hvort međal hinna eyddu pósta hafi veriđ tölvupóstur varđandi Nauthólsveg 100. Enn fremur skođađi Innri endurskođun skjöl varđandi framkvćmdirnar ađ Nauthólsvegi 100 í skjalavörslukerfi borgarinnar, eins og fram kemur á bls. 76 í skýrslunni, og ţar voru einungis örfáir tölvupóstar vistađir.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband