Ofbeldi gegn öldruđum

Skýrsla starfshóps um aldrađa og heimilisofbeldi hefur veriđ kynnt í borginni. Ég lét bóka eftirfarandi:
 
Ofbeldi gegn öldruđum er alvarlegt mál og ţví miđur berast fregnir af slíkum tilfellum. Fulltrúi Flokks fólksins fagnar skýrslunni enda mikilvćgt ađ safna gögnum međ reglulegu millibili um svo viđkvćmt og alvarlegt mál. Hér á landi er ekki til ákveđin stefna um málefni aldrađra ţegar kemur ađ ofbeldi og vanrćkslu. Yfir öldruđum og öđrum viđkvćmum hópum er mikilvćgt ađ stjórnvöld og samfélagiđ allt standi saman vaktina. Ef horft er til rannsókna má sjá ađ 2-10% aldrađra eru ţolendur ofbeldis. Ofbeldi gegn öldruđum getur veriđ andlegt og líkamlegt og stundum er ţađ í formi vanrćkslu. Fulltrúi Flokks fólksins styđur tillögur s.s. ađ útbúiđ verđi upplýsingaefni fyrir aldrađa um heimilisofbeldi. Samstarf heilsugćslu, ţjónustumiđstöđva og Landspítala er brýnt til ţess ađ freista ţess ađ flest mál komi fram í dagsljósiđ og hćgt verđi ađ fylgja ţeim eftir međ fullnćgjandi hćtti. Ofbeldi/heimilisofbeldi er falinn vandi. Eldri borgarar sem beittir eru ofbeldi kunna ađ upplifa skömm og vanmátt og kjósa ţví ađ leyna ţví ofbeldi sem ţeir verđa fyrir. Á ţeirra uppvaxtarárum var ofbeldi almennt ekki mikiđ rćtt og frćđsla afar takmörkuđ. Sumir eldri borgarar gera sér jafnvel ekki grein fyrir ađ veriđ er ađ beita ţá ofbeldi.

ofbeldi aldrađra mynd

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband