Hundaeigendalistinn birtur á netinu

Mikiđ fer ţessi listi međ nöfnum og heimilaföngum ţeirra sem fengiđ hafa hundaleyfi í taugarnar á mér. Listinn er lagđur fram reglulega á fundi umhverfis- og heilbrigđisráđs og í kjölfariđ birtur á netinu. Ţetta er sérkennilegt í ljósi tillögu stýrihóps um endurskođun gćludýrareglna ađ fella niđur hundaleyfisskyldu.
Ég bókađi um ţetta 15. desember og ţá sagt ađ ţetta myndi breytast eftir áramót, ţá yrđi svona listi ekki lengur lagđur fram. Samt er listinn áfram lagđur fram á fundi 20. janúar.

Flokkur fólksins lagđi til í desember ađ hćtt verđi ađ innheimta skráningar- og eftirlitsgjald af hundaeigendum. Tillagan var felld. Ef leggja á niđur hundaleyfisskyldu er ekkert sem réttlćtir lengur hundaeftirlitsgjald.

Stýrihópurinn leggur engu ađ síđur til ađ haldiđ verđi áfram ađ innheimta eftirlitsgjald ţ.e. af ţeim sem láta skrá hunda sína hjá Reykjavíkurborg. Ţađ eru í mesta lagi eigendur 2.000 hunda af áćtluđum 9.000 hundum í borginni. Ţessi samviskusömu hundaeigendur sem greiđa eftirlitsgjaldiđ eiga ađ standa straum af allri gćludýraţjónustu í borginni. Ekki er rukkađ gjald fyrir nein önnur gćludýr.

Loksins, seint á síđasta ári, voru vinnuskýrslur hundaeftirlitsmanna birtar sem ég hafđi margbeđiđ um ađ fá ađ sjá en sagt ađ ekki vćri hćgt ađ afhenda ţar sem í ţeim vćru persónurekjanleg atriđi (vaktir tveggja hundaeftirlitsmanna). En skýrslurnar sýndu síđan eins og vitađ var ađ hundaeftirlitiđ hafđi nánast ekkert ađ gera. Allt áriđ í fyrra voru málin ađeins 21 fyrir utan desember, ţetta er ein eftirlitsferđ á viku fyrir hvorn hundaeftirlitsmann. Málefni gćludýra og hundaeigenda eru eins og aftur úr fornöld. Reykjavík getur varla talist vera hundavinsamleg borg. 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband