Tillaga Flokks fólksins um heimgreiđslur til foreldra
12.1.2023 | 12:12
Tillaga Flokks fólksins um heimgreiđslur til foreldra barna sem bíđa eftir leikskólaplássi fyrir börn sín. (Lögđ fram á fundi borgarstjórnar 17. janúar nćstkomandi)
Lagt er til ađ á međan Reykjavíkurborg getur ekki veitt yngstu börnunum leikskólapláss ađ bjóđa foreldrum mánađarlegan styrk (heimgreiđslur) sem jafngildir niđurgreiđslum Reykjavíkurborgar fyrir leikskólapláss fyrstu tvö árin. Einhverjir foreldrar hafa tćkifćri til ađ vera heima hjá barni sínu fyrstu misserin og geta vel hugsađ sér ađ ţiggja mánađarlegar greiđslur frekar en ađ ţiggja leikskólapláss. Heimgreiđslu úrrćđiđ mun sennilega létta á biđlistum.
Greinargerđ
Mikil fjölgun hefur veriđ á umsóknum og má rekja vandann helst til húsnćđisleysis og manneklu. Mannekla er tilkomin einna helst vegna mikils álags, slćmrar starfsađstöđu og lágra launa. Mörg hundruđ börn bíđa eftir leikskólaplássi. Framsóknarflokkurinn lofađi ađ borgin snerist um börnin og nú er ađ standa viđ ţađ. Framsóknarflokkurinn hefur einnig sagst vilja skođa heimgreiđslur sem einn hluta af mótvćgisađgerđum á međan ástandiđ er svo slćmt í leikskólamálum.
Margir foreldrar búa viđ mikla óvissu og mikilvćgt er ađ sveitarfélög komi til móts viđ ţá međ öllum ráđum. Störf í leikskóla eru ekki eftirsótt og er ljóst ađ hugsa ţarf út fyrir boxiđ til ađ finna leiđir til ađ lađa fćrt fólk til starfa. Launin eru léleg og álag mikiđ.
Leikskólamál eru í lagi í mörgum sveitarfélögum sem eru komin fram úr Reykjavík bćđi viđ ađ eyđa biđlistum, ţjónustu viđ börnin og foreldrana og eru dćmi ađ finna um leikskóla međ gjaldfrjálsan mat og jafnvel einstök sveitarfélög hafa fellt niđur leikskólagjöld.
Í byrjun hausts 2023 fengum viđ borgarfulltrúar bréf frá örvćntingarfullum foreldrum hafa hrannast upp í pósthólfum borgarfulltrúa undanfarnar vikur. Börn, jafnvel 20 mánađa gömul hafa fengiđ pláss á leikskóla sem er ekki til. Vegna manneklu eru leikskólabörnin ítrekađ send heim eđa foreldrar fá tilkynningu ađ kvöldi um ađ ţau verđi ađ halda barni sínu heima vegna manneklu. Ţessi stađa veldur streitu og kvíđa hjá foreldrum. Stađan er óbćrileg fyrir alla ađila líka starfsmenn leikskólanna. Viđ verđum ađ bregđast viđ ţessari neyđ strax og tína til öll úrrćđi sem finnast í verkfćrakistunni. Ţetta ástand kemur sérlega illa niđur á foreldrum međ lágar tekjur og sem eru ekki međ stuđning fjölskyldu. Ungir foreldrar eru ekki allir međ foreldra sína og stórfjölskyldu í Reykjavík til ađ hlaupa undir bagga. Fjölmargar fjölskyldur eru búnar ađ nýta öll úrrćđi sem ţeim býđst og hafa engin frekari ráđ til ađ fá pössun fyrir börn sín. Hvernig eiga foreldrar ađ geta stundađ vinnu sína? Í ljósi ţessara ţátta m.a. er mikilvćgt ađ skođa međ opnum huga tillögu Flokks fólksins um heimgreiđslur. Ţađ fjármagn sem úrrćđiđ krefst er vel variđ og hefur jákvćđ áhrif á fjölmargt annađ ţessu tengt.