Milljónatap

Þeir sem hafa verið virkir á hlutabréfamarkaðinum undanfarin ár hafa þurft að horfa á eftir milljónum ef ekki milljörðum hreinlega gufa upp.  Hvort eitthvað af þessu tapi skilar sér aftur að hluta til eða að öllu leyti getur enginn spáð fyrir með neinni vissu.  Eina færa leiðin er bara að bíða og vona að markaðurinn taki við sér af einhverri alvöru.  Þeir sem telja sig hafa gott vit á þessum málum spá þó því að ekki vænkist hagur næsta árið í það minnsta. 

Í svona aðstæðum er þess vegna best að huga að hvað gefur lífinu raunverulegt gildi og ekki skal gleyma því að veraldleg gæði ná bara visst langt þ.e. þar til dauðinn bankar upp á.

Tap
Til hvers að syrgja tapað fé,
týnda hluti eða hulið hnoss.
Gröfinni allslaus ert gefinn á vald.
Holdið þú nauðugur kveður,
Himni þú vonglaður heilsar.
Veraldleg gæði þér gagnast ei meir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Var þetta ekki alltaf mest froðufé, eins og Sverrir Hermannsson sagði alltaf.  Fé sem er meira pappír en raunveruleg inneign fyrir ?  Spyr sú sem ekki veit. En ég er búin að uppgötva að ég hef þroskast upp úr þeirri græðgi að eiga fé.  Það er mjög ánægjulegt þroskamerki og ég er ánægð með sjálfa mig.

Þetta er flott vísa hjá þér Kolbrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.3.2008 kl. 11:21

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Gott að eiga fé, en að lifa fyrir það er mikil og skelfileg sóun

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 6.3.2008 kl. 12:01

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband