Er þetta rétt skilið?

Icesave.

Er það rétt skilið að aðallögfræðingur Seðlabankans hafi hringt í Árna Þór í gærkvöldi og sagt honum að álit Seðlabankans á Icesavesamningnum hafi verið hennar persónulega álit?

Þetta er sérkennilegt, ef rétt er, í ljósi þess að Seðlabankinn átti fulltrúa í Icesave- samninganefndinni. En best að hafa allan vara á hvað er rétt og satt í þessu máli sem öðru.

En þetta skýrist kannski allt betur á morgun.Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgeir Bjarnason

Aðallögfræðingur Seðlabankans sendi Árna Þór bréf með þessum upplýsingum.

Ég tek undir með þér að það er undarlegt að Seðlabankinn er að gera athugasemdir við þennan samning núna í ljósi þess að fulltrúi hans var í samninganefndinni. Þetta mál segir mér að menn þar á bæ talist ekki við. Það veit ekki á gott.

Kv.

Valgeir Bjarnason, 14.7.2009 kl. 22:51

2 identicon

Það er hugsanlegt að hún hafi metið það svo að hið raunverulega lögfæðiálit myndi týnast í langloku Seðlabankans, matreiddri af norsku hendbendi Jóhönnu og möltufálkans Össurar. Mér sýnist það líka hafa gert það, auk þess sem hann varar við því að fella samninginn.

Það kæmi mér ekki á óvart þó fram kæmi síðar að Svavar Gestsson hafi verið með einleik í "nefndinni".

Offi (IP-tala skráð) 15.7.2009 kl. 12:13

3 identicon

Þetta er rétt hjá Valgeiri, nema að bréfið var í tölvupósti.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 15.7.2009 kl. 15:03

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband