Nýjustu færslur
- 19.11.2024 Hef ekki lent í öðru eins við að koma máli á dagskrá
- 18.11.2024 Máttur samtryggingarinnar
- 16.11.2024 Reynsla sem sálfræðingur rak mig í pólitík
- 14.11.2024 Endurskoða hugmyndir um bílastæðahús- fjölnotahús, skoða þarf...
- 11.11.2024 Ef byggja á í grónum hverfum gengur ekki að vera með einhvern...
- 2.11.2024 Of mikið af kærum
- 2.10.2024 Upplýsingaóreiða bílastæðakjallara og húsa, einkarekin eða bo...
- 1.10.2024 Íbúar hafa lengi verið að kalla eftir auknu umferðaröryggi vi...
- 26.9.2024 Eyðublöð í þúsunda tali við að svara einföldum já/nei spurningum
- 22.8.2024 Bráðavandann í umferðinni verður að leysa
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Helgi Seljan
- ADHD
- Ágúst H Bjarnason
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés.si
- Andri Heiðar Kristinsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Möller
- Ásta Kristín Norrman
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Benedikt Halldórsson
- Bleika Eldingin
- Bwahahaha...
- Bragi Þór Thoroddsen
- Bryndís Haraldsdóttir
- Charles Robert Onken
- Dögg Pálsdóttir
- Dúa
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Viðar Eggertsson
- Einar G. Harðarson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Karl Gauti Hjaltason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gúnna
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Guðjón Bergmann
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún Pálína Karlsdóttir
- Gulli litli
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Handtöskuserían
- Hanna
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haraldur Haraldsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helga Lára Haarde
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hulda Dagrún Grímsdóttir
- Óskar Arnórsson
- Húsfreyja
- Snorri Bergz
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- íd
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Sigurður Einarsson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Jón Magnússon
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Killer Joe
- Kjartan Jónsson
- Sólveig Klara Káradóttir
- Magnús Paul Korntop
- Kristín Ástgeirsdóttir
- Bjarki Steingrímsson
- Lífsýn fræðsla og forvarnir
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Linda Lea Bogadóttir
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Lýður Pálsson
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Mál 214
- Alfreð Símonarson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Marta B Helgadóttir
- Methúsalem Þórisson
- mongoqueen
- Morgunblaðið
- Steinar Immanúel Sörensson
- Gísli Tryggvason
- Ólafur Örn Nielsen
- Jón Svavarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Ragnarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Perla
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Helgi Kristófersson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Katrín
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gunnarsdóttir
- Sigurður Rúnar Sæmundsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigríður Jónsdóttir
- Birgir R.
- Hreiðar Eiríksson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefana Gunnlaug Karlsdóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Jóhann Pétur
- Sunna Dóra Möller
- superhúsfrú
- Johann Trast Palmason
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þorsteinn Magnússon
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Vefritid
- Vertu með á nótunum
- Vilborg G. Hansen
- Elsabet Sigurðardóttir
- Kjartan Magnússon
- Kristján P. Gudmundsson
- Loftslag.is
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Skúmaskot tilverunnar
- Stefán Júlíusson
Þrátt fyrir mikið atvinnuleysi hefur ekki tekist að manna stöður frístundarheimila
20.8.2009 | 19:45
Þúsundir manna þar á meðal fjölmargir foreldrar eru atvinnulausir. Samt hefur ekki tekist að manna allar stöður á frístundarheimilum.
Það er ekki minni ásókn nú en oft áður í að börn fái pláss á frístundarheimilum.
Ályktanir sem draga má af þessu geta sjálfsagt verið margvíslegar.
Við fyrstu sýn má samt komast að einhvern veginn svona niðurstöðu:
Þeir sem eru atvinnulausir núna hafa mikið til ekki áhuga á að vinna á frístundarheimilum.
Svo virðist sem foreldrar óski eftir að börnin þeirra fái pláss á frístundarheimilum og gildir þá einu hvort þeir eru atvinnulausir eða ekki.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:59 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Mínir tenglar
- Í þínum sporum. Höldum saman gegn einelti og kynferðislegri áreitni Verkfærakista við úrvinnslu eineltismála. Frjáls og frír aðgangur
- Heimasíða Kolbrúnar Baldursdóttur Sálfræðistofan, greinar og námskeið
Nóv. 2024
Nýjustu færslurnar
33 dagar til jóla
Um bloggið
Kolbrún Baldursdóttir
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Mig furðar á því hvers vegna fólki finnst það ekki eftirsóknarvert að vinna að velferð annarra þó ekki sé í boði veraldlegur auður.
Finnur Bárðarson, 20.8.2009 kl. 22:11
Ég held því miður að það séu ekki störfin sem fæla, heldur launin sem í boði eru. Það er óskaplega þægilegt að gagnrýna fólk fyrir að sækja ekki um störf, en þá er bara eftir að kanna orsakirnar. Það hefur einmitt borið þónokkuð á því að atvinnurekendur hafi kvartað hástöfum í fjölmiðlum og ég skora á fréttamenn að spyrja um þau laun sem eru í boði fyrir þá vinnu sem treglega gengur að ráða í.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.8.2009 kl. 01:50
Hvers vegna ættu foreldrar sem greinilega hafa ekki vilja eða getu til að vera með börnum sínum að sækjast eftir því að vera með öðrum börnum?
Svanur Gísli Þorkelsson, 21.8.2009 kl. 02:28
Eins og máum hefur verið háttað hingað til hafa starfsaðstæður á Frístundaheimilum borgarinnar verið skelfilegar. Allt of fátt fólk miðað við fjölda barna. Bara hávaði á svona stað er mjög erfiður stanslaust í 8 - 9 tíma. Segja má að þetta séu aðstæður sem eru bæði börnum og starfsfólki mjög erfiðar. Hvernig væri að borgin í þessu árferði réði fleira starfsfólk inn á þessa staði til þess að gera börnum og starfsfólki þetta léttara?
Og er þetta einungis spurninin um að fólk sem er atvinnulaust vilji ekki vinna?
Var ekki búið að gera áætlanir um miklu mun færri börn á heimilinum en nú eru skráð?
Eru þau vinnubrögð Reykjavíkurborgar sæmileg?
Þetta starf er ábyrgðamikið og mikið starf almennt - fyrir það greiðir borgin hvað í laun? 135.ooo krónur á mánuði?
Alma Jenny Guðmundsdóttir, 21.8.2009 kl. 08:35
Sérkennileg niðurstaða hjá þér Kolbrún. Segir afskaplega fátt.
Finnur, ástæðan gæti verið sú að flestir þurfa að vinna fyrir eigin afkomu, fæði, húsnæði og skuldum. Því eins og Hólmfríður segir þá eru það helst launin sem fæla. Margt fólk sem gjarnan vill vinna á frístundaheimilum hefur hreinlega ekki efni á því.
Mér finnst það líka mjög sérkennileg og frek hugsun að atvinnulausum beri að taka hvaða starfi sem er. Eins og atvinnulausir séu olnbogafólk á samfélaginu.
Það gleymist oft að flest fólk borgar sjálft sínar atvinnuleysisbætur á langri starfsæfi og á að hafa rétt á að finna starf á sínu sviði eða við sitt hæfi, hvert sem það er.
Inga Helgadóttir (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 09:02
Niðurstaðan segir, Inga, hvorki meira né minna en bara það sem hún segir. Hver og einn getur svo dregið sínar eigin ályktanir.
Svo ég haldi aðeins áfram, þá mætti bera þetta saman við sama tímabil í fyrra. Ég minnist þess ekki að svo erfitt hafi verið að manna stöður frístundarheimila fyrir hrunið í fyrra haust. Þó skal ég ekki fullyrða það.
Hitt atriðið er að þótt foreldri kunni að vera atvinnulaust óskar það engu að síður eftir að barnið/börn þess fái pláss á frístundarheimili. Á þessu kunna að vera margar skýringar eins og gefur að skilja.
Kolbrún Baldursdóttir, 21.8.2009 kl. 09:12
Fróðlegt að heyra hvaða kröfur um menntun, reynslu, o.s.frv. eru gerðar til starfsfólks á frístundarheimilum?
Agla (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 12:00
Ekki virðist vera mikið framboð á hálaunastörfum Inga en er þetta ekki meira gefandi en að vera á bótum ?
Finnur Bárðarson, 21.8.2009 kl. 18:52
Einmitt Svanur
En ef litið er til þess hvernig kaupin gerast á eyrinni þá verður sá sem er á atvinnuleysisskrá að geta stokkið til og unnið ef honum býðst vinna og þá er ekki gott í efni ef þú ert heima með barnið þitt og kemur því ekki í pössun eftir skóla. Það sama gildir með yngri börnin, þú verður að vera með barnið í gæslu ef þú þiggur atvinnuleysisbætur því ef þér dytti nú í hug að hugsa bara sjálfur um barnið þitt meðan þú ert hvort sem er atvinnulaus heima - nú þá missirðu bæturnar og getur ekki framfleytt fjölskyldunni. Afspyrnu gáfulegt kerfi (eða þannig) og ekki beint til þess fallið að auka samveru foreldra og barna og fjölskyldutengsl.
, 22.8.2009 kl. 13:50