Bloggfćrslur mánađarins, desember 2007

Ást... Ég fann ei, hvađ lífiđ er fagurt fyrr en ég elskađi ţig

Ég sá frábćrt stykki í Borgarleikhúsinu í gćr en ţađ var leikritiđ Ást.
Eins og segir á vef Borgarleikhússins fjallar leikritiđ um ástir og daglegt líf heimilismanna á elliheimili. Nína sem leikin er af Kristbjörgu Kjeld er eldri kona utan af landi sem kemur í skammtímavistun á elliheimili í höfuđborginni.
Ţetta er söngleikur og er verkiđ skipađ úrvalsleikurum sem allir skila sínu frábćrlega.
Kristbjörg fer á kostum og Ómar Ragnarsson sýnir leikfćrni sína međ ótal svipbrigđum og fjölbreyttu líkamsmáli.
Ţrátt fyrir tregafull atriđi er verkiđ létt og afar fyndiđ á köflum. Sagan höfđar til allra aldurshópa og minnir mann á hvađ skiptir mestu máli í lífinu en ţađ er kćrleikurinn.

Ljóđlínan í fyrirsögn bloggsins er úr Ást, ljóđ eftir Sigurđ Nordal og lag eftir Magnús Sigmundsson.

Ástin er áhćtta.
Ástin er áhćtta,
engri tilfinningu lík.
Veldur stundum vonleysi og sorg.
Hatri, gráti eđa hlátri.
Hćttuleg en eftirsótt,
sérhverjum sem lifa langar.
(KB)


« Fyrri síđa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband