Öryggið á oddinn. Er smokkurinn of dýr?

ungt_folk_a_skemmta_sermbl0062498.jpgAð smokkurinn sé of dýr og að það sé  ástæða aukinna tilfella m.a. Lekanda?

Þessa skýringu kaupi ég ekki. Í fréttum var fjallað um lokaverkefni tveggja sálfræðinema og var þetta m.a. ein af skýringum þeirra fyrir aukinni tíðni lekanda og annarra kynsjúkdóma.

Tveir smokkar kosta 500 krónur og 12 smokkar kosta 2000 krónur.

Ég held að ástæða þess að ungmenni noti ekki smokkinn í meiri mæli sé fyrst og fremst að þeim þykir það hallærislegt. Þetta er feimnismál. Það er ólíklegt að helsta ástæðan sé sú að þeir hafi ekki ráð á að kaupa smokka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl, ég er önnur þessara tveggja sálfræðinema og mig langaði bara að nefna að ég sagði í viðtalinu að við töldum að hluta til ástæðuna vera að þetta er auðvitað feimnismál, ástæðuna fyrir því af hverju það var ekki birt veit ég því miður ekki.

 kv. Hlín.

Hlín (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 09:43

2 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Mér hefur þótt sem unglingar hafi mikil fjárráð undanfarin ár, jafnvel eftir hrun. Svo mörg vinna með skólanum og kaupa sér jafnvel bíl 17 ára. Ég vil þó ekki fullyrða neitt út fyrir mína svona guts feeling á þessu eftir 20 ára starf sem sálfræðingur. Þetta er held ég einmitt aðallega feimnismál, eitthvað hallærislegt sem þeim finnst við þetta þar á meðal ótti við að það klúðrist að koma smokknum á sinn stað í hita leiksins sem og fleira tengt þessu atferli þ.e. að draga hann upp úr vasanum, hvor á að hafa frumkvæði o.s.frv.

Það er í raun ekki erfitt að skilja þetta ef maður prófar að setja sig í þessi spor, vera ungur og hafa ekki náð fullum tilfinningar- og félagsþroska. Aðalmálið er að koma því inn í vitund þeirra hversu mikilvægt þetta er og að heilsa þeirra sé í húfi og vona að sem flest sýni fyrirhyggju, setji smokk í vasann eða töskuna og hafi hugrekki til að draga hann fram ef stunda á kynlíf.

Smit á kynsjúkdómum eru algengara við skyndikynni og slík kynni eiga sér oftar stað þegar ungmennin eru að skemmta sér og þá er stundum vín haft um hönd.  Stærsti kostnaðurinn við þessar aðstæður er áfengi og leigubílar en ekki 500 króna smokkapakki.

Kolbrún Baldursdóttir, 21.7.2010 kl. 11:54

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband