Vináttan í forgrunni í leikskólum landsins

Árlegt Fréttablað Barnaheilla- Save Blad notathe Children á Íslandi kom út í dag. Selma Björk Hermannsdóttir, nemandi í Fjölbrautarskóla Garðabæjar segir frá minningum sínum um einelti sem byrjaði í leikskóla.

Meginþema blaðsins í ár er "Vináttan í forgrunni" en eitt af stóru verkefnum Barnaheilla á Íslandi er forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólum.

Blær og co

Selma Björk Hermannsdóttir fæddist með skarð í vör og hefur kynnst flestum birtingarmyndum eineltis frá því hún var í leikskóla. Hún og faðir hennar ræða þessa reynslu, en einnig eru í blaðinu greinar um fátækt, heimilisofbeldi, mismunun, börn í fjölmiðlum, ungmennaráð Barnaheilla og ýmislegt fleira.

Í blaðinu má jafnframt lesa um markmið og áherslur Barnaheilla. Við hjá Barnaheill vonumst til að sem flestir fái tækifæri til að lesa blaðið okkar:)

Blaðinu verður dreift um allt land en einnig er hægt að nálgast eintak á skrifstofu Barnaheilla á Háaleitisbraut 13.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband