Mun einhver hlusta?

Blađ Barnaheillajpg

"Heimilisofbeldi er ekki nýtt fyrirbćri heldur hefur veriđ til frá örófi alda. Víđa um heim er heimilisofbeldi álitiđ einkamál fjölskyldunnar og óviđkomandi öđru fólki.

Áđur en "barnavernd" ruddi sér til rúms hér á landi međ barnaverndarlögum áriđ 1932 ţótti ofbeldi gagnvart börnum jafnvel ekkert tiltökumál. Mörg börn voru á heimilum sínum beitt harđrćđi í skjóli uppeldis eđa í uppeldisskyni.

Öll viljum viđ geta litiđ á heimiliđ sem griđastađ sem veitir öryggi og ró. Ţannig er ţví ekki fariđ á heimilum ţar sem annađ eđa báđir foreldrarnir beita ofbeldi. Ţá er heimiliđ jafnvel hćttulegasti stađurinn til ađ vera á.

Ofbeldi getur veriđ andlegt, líkamlegt og kynferđislegt. Sá sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi eirir stundum engum fjölskyldumeđlimi og gildir ţá einu hvort um sé ađ rćđa ung börn eđa fullorđna heimilismenn.

Ţótt ofbeldinu sé e.t.v. ekki beint ađ börnunum á heimilinu fara ţau ekki varhluta af ţví. Ţar sem heimilisofbeldi ríkir verđa börnin nánast undantekningalaust vitni ađ ţví međ einum eđa öđrum hćtti. Börn eru nćm á tilfinningalegt ástand foreldra sinna og skynja vel óttablandiđ andrúmsloft heimilislífs ţar sem ofbeldi viđgengst. Viđ slíkar ađstćđur ríkir óstöđugleiki á heimili og viđvarandi óvissa um hvort vćnta megi ofbeldisuppákomu í dag, á morgun, á jólum eđa páskum. Skađsemi ţessara ađstćđna er iđulega mikil og djúpstćđ. Líkamlegur skađi grćr ef til vill ađ mestu en hinn sálrćni getur varađ ćvilangt." 
(Upphaf greinarinnar Mun einhver hlusta? höf.KB). Megininntak hennar er ađ segi barn frá ofbeldi á heimili má ekki bregđast ađ á ţađ sé hlustađ. 

Sjá meira um ţessi mál í Blađi Barnaheilla 2015, sem nú er í dreifingu. Hćgt er ađ nálgast eintak á skrifstofu Barnaheilla- Save the Children á Ísland á Háaleitisbraut 13. Í Blađinu eru m.a. upplýsingar um starf og verkefni Samtakanna á Íslandi auk fjölda áhugaverđra greina m.a. um ofbeldi/einelti/heimilisofbeldi.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband