Sum segjast ekki langa ađ fara til ađ fátćkt ţeirra spyrjist ekki út

Allt kostar, líka ađ fara í skólaferđalög og halda árshátíđir. Auđvitađ vilja börn og unglingar gera ţetta allt saman enda skemmtilegt. En hver á ađ borga? Margir foreldrar sem eru í góđum efnum finnst ekkert nema sjálfsagt ađ greiđa háar upphćđir fyrir alls kyns ferđir, viđburđi og glćsilega árshátíđ fyrir barn sitt međ öllu tilheyrandi. En ţađ eru ekki allir foreldrar sem eiga aukakrónur til ađ standa straum af kostnađi sem ţessum. Börn ţessara foreldra ţurfa ţess vegna stundum einfaldlega ađ sitja heima og ţađ er sárt. Ţeim langar alveg jafn mikiđ ađ fara í ferđir og á árshátíđ eins og öllum hinum börnunum. En til ađ standa vörđ um erfitt efnahagsástand foreldra sinna og af ótta viđ ađ ţađ spyrjist út ađ fátćkt er á heimilinu segja börnin jafnvel bara ađ ţeim langi ekki ađ fara eđa ţau séu upptekin. 

Foreldrar sem hafa ekki ráđ á ađ borga fyrir dýra viđburđi eđa ferđir líđa oft sálarkvalir og finnst ţau vera ađ bregđast barni sínu. Hvađ varđar árshátíđ er vissulega hćgt ađ halda árshátíđ án ţess ađ barn ţurfi ađ reiđa fram ţúsundir króna. Finna ţarf ađrar leiđir. Ţađ sem skiptir máli fyrir börnin er ađ vera saman og gera eitthvađ saman. Samveran sem slík kostar ekki neitt. Máliđ er ađ finna samverunni umgjörđ sem útilokar engan. Ađ koma saman í sínu fínasta pússi á árshátíđ sem haldin er í skólanum og skemmta sér saman: tala saman, syngja og hlćgja saman og umfram allt dansa er međal ţess sem krökkum ţykir hvađ allra skemmtilegast. Ferđir kosta vissulega alltaf eitthvađ. Ţađ ţarf alla vega ađ borga bílstjóranum. Í ţeim tilfellum er iđulega ráđist í fjáröflun eđa sótt er um styrk hjá sveitarfélaginu sem er hiđ besta mál.

Grunnskólinn er samkvćmt lögum gjaldfrjáls og ţarf ţađ ađ gilda um allt sem tengist skólanum. Sem sálfrćđingur og borgarfulltrúi fagna ég umrćđunni og vona ađ hún verđi til ţess ađ allir skólar skođi ţessi mál hjá sér og gleymi aldrei ađ sumar fjölskyldur eiga ekki mikiđ aflögu. Ţađ má aldrei vera ţannig ađ barn geti ekki tekiđ ţátt í skólatengdum viđburđum vegna ţess ađ foreldri getur ekki greitt uppsett gjald. Öll mismunun fer illa međ börn. 

Ég hef í borgarstjórn margsinnis rćtt um og komiđ međ tillögur um ađ gćta ţurfi jafnrćđis ţegar kemur ađ ţátttöku í ferđum eđa viđburđum á vegum skóla, frístundar og félagsmiđstöđva sem börnin sćkja. Ţađ er skylda okkar sem samfélags ađ sjá til ţess ađ börnum sé ekki mismunađ á grundvelli fjárhagsstöđu foreldra ţeirra. Ađ mismuna börnum vegna fjárhagsstöđu foreldra samrćmist ekki 2. gr. Barnasáttmála Sameinuđu ţjóđanna sem kveđur á um jafnrćđi – banni viđ mismunun af nokkru tagi án tillits til m.a. félagslegra ađstćđna. Börn fátćkra foreldra sitja ekki viđ sama borđ og börn efnameiri eđa ríkra foreldra. Ţau fá t.d. ekki sömu tćkifćri til tómstunda. Skólatengdir félagslegir viđburđir og  verkefni eru stundum eina tómstund ţessara barna.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband