Hvers á Úlfarsárdalur að gjalda?
11.10.2019 | 15:13
Úlfarsárdalur er tiltölulega nýtt hverfi. Fjöldi ábendinga hafa borist vegna safnhauga byggingarefnis þar og skort á götumerkingum til að tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.
Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur brugðist við þessu og lagt fram fyrirspurnir um eftirlit með umhirðu og tillögu um borgarmeirihlutinn geri átak í að betrumbæta merkingar til að tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á gönguþverunum og gangbrautum í Úlfarsárdal.
Víða í Úlfarsárdal eru gangbrautir ekki merktar eins og á að gera (sebrabrautir). Einnig vantar aðrar merkingar svo sem gangbrautarmerki sem nota skal við gagnbraut og vera beggja megin akbrautar. Ef eyja er á akbraut á merkið einnig vera þar. Það vantar einnig víða viðvörunarmerki sem á að vera áður en komið er að gangbraut. Gangbrautarmerkið ætti ekki að vera lengra en 0,5 m frá gangbraut.
Þetta er sérkennilegt því meirihlutinn í borginni hefur svo oft talað um að réttindi gangandi og hjólandi í umferðinni skuli koma fyrst. Allar gangbrautir eiga að vera merktar eins og eins og lög og reglugerðir kveða á um. Segir í þeim að gangbrautir verði merktar með sebrabrautum og skiltum til að auka umferðaröryggi. Í reglugerð 289/1995 er kveðið á um að gangbraut skuli merkt með umferðarmerki báðum megin akbrautar sem og á miðeyju þar sem hún er. Þá skal merkja gangbraut með yfirborðsmerkingum, hvítum línum þversum yfir akbraut (sebrabrautir).
Tillögunni var vísað til skipulags- og samgönguráðs
Haugar af tæki, tólum og öðru byggingardrasli
Ábendingar hafa borist um mikla óhirðu í kringum byggingarsvæði í Úlfarsárdal. Um þessi mál lagði Flokkur fólksins fyrirspurn þess efnis hvernig eftirliti og eftirfylgd er háttað með umhirðu verktaka Reykjavíkurborgar á vinnustað og hver viðurlögin eru séu reglur brotnar.
Í stöðluðum útboðsákvæðum borgarinnar segir að verktaki skuli ávallt sjá um að allir efnisafgangar séu fjarlægðir jafnóðum. Verktaki skal sjá svo um að umhirða á vinnustað, vinnuskúrum og á lóðum sé ávallt góð og skal verktaki fara eftir fyrirmælum eftirlitsmanns þar að lútandi. Verktaki skal enn fremur gæta ýtrustu varúðar og öryggis við framkvæmd verksins.
Á þessu er heldur betur misbrestur í Úlfarsárdal. Þar er umhirðu verulega ábótavant og líkur á að slysahætta skapist. Sums staðar ægir öllu saman, tæki, tólum og drasli. Sjá má moldar- og vatnspytti á byggingastöðum, hauga af byggingarefni og annarri óreiðu jafnvel á götum sem tengjast ekki byggingarsvæðinu sjálfu. Sagt er að lóðarhafar til margra ára safna byggingaefni á lóðir án þess að hefja framkvæmdir. Sumum finnst þetta ekki vinnustaðir heldur safnhaugar. R19090303
Fyrirspurnum var vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsviðs.