Látum drauma allra barna rætast, ekki bara sumra

Í borgarstjórn var verið að ræða um Menntastefnu Reykjavíkurborgar til 2030 og get ég ekki annað en tönglast á 1033 barna biðlista eftir sálfræðiþjónustu og fleirum fagaðilum skólanna. Stefnan er metnaðarfull og full af flottum hugmyndum. Blessunarlega líður fjöldann allan af börnum vel í skólum sínum. Starfsfólk vinnur óeigingjarn starf og margir eru undir miklu álagi.

Bókun Flokks fólksins er eftirfarandi:

Margt er gott í þessari stefnu en „stefna“ leysir engin vandamál nema henni sé fylgt eftir með framkvæmdum. Mestu skiptir að börn stundi nám þar sem þeim líður vel og mæta þarf þörfum allra barna. En það er ekki raunin á vakt þessa, né síðasta meirihluta. Flokkur fólksins greiddi atkvæði með stefnunni á sínum tíma í þeirri von að tekist væri á við það sem þarf að laga.  
Vandinn er m.a.:
Skólaþjónustan er sprungin og ekki er hreyfður fingur til að bæta þar úr þrátt fyrir hávært ákall.

"Skóli án aðgreiningar" fær ekki nægt fé til að bera nafnið með rentu. Ekki öll börn stunda nám þar sem þau finna sig meðal jafningja Sérskólaúrræði eru löngu yfirfull.

Of mikið álag er á mörgum kennurum/sérkennurum og starfsfólki

Ekki eru neinar samræmdar árangursmælingar á hvort sérkennsla skilar sér.

"Snemmtæk íhlutun" er auðvitað sjálfsagt mál og hefur alltaf verið en kemur ekki í staðin fyrir sértækar greiningar. Hætta er á að barni sé ekki veitt rétt meðferð vegna þess að aldrei var kannað hver raunverulegur vandi þess er.
Samkv. PISA 2018 lesa um 34% drengja um 15 ára sér ekki til gagns og 19% stúlkna. Nemendum sem ekki ná grunnhæfniviðmiðum lesskilnings hefur fjölgað hlutfallslega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband