Nýjustu færslur
- 19.11.2024 Hef ekki lent í öðru eins við að koma máli á dagskrá
- 18.11.2024 Máttur samtryggingarinnar
- 16.11.2024 Reynsla sem sálfræðingur rak mig í pólitík
- 14.11.2024 Endurskoða hugmyndir um bílastæðahús- fjölnotahús, skoða þarf...
- 11.11.2024 Ef byggja á í grónum hverfum gengur ekki að vera með einhvern...
- 2.11.2024 Of mikið af kærum
- 2.10.2024 Upplýsingaóreiða bílastæðakjallara og húsa, einkarekin eða bo...
- 1.10.2024 Íbúar hafa lengi verið að kalla eftir auknu umferðaröryggi vi...
- 26.9.2024 Eyðublöð í þúsunda tali við að svara einföldum já/nei spurningum
- 22.8.2024 Bráðavandann í umferðinni verður að leysa
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Helgi Seljan
- ADHD
- Ágúst H Bjarnason
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés.si
- Andri Heiðar Kristinsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Möller
- Ásta Kristín Norrman
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Benedikt Halldórsson
- Bleika Eldingin
- Bwahahaha...
- Bragi Þór Thoroddsen
- Bryndís Haraldsdóttir
- Charles Robert Onken
- Dögg Pálsdóttir
- Dúa
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Viðar Eggertsson
- Einar G. Harðarson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Karl Gauti Hjaltason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gúnna
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Guðjón Bergmann
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún Pálína Karlsdóttir
- Gulli litli
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Handtöskuserían
- Hanna
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haraldur Haraldsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helga Lára Haarde
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hulda Dagrún Grímsdóttir
- Óskar Arnórsson
- Húsfreyja
- Snorri Bergz
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- íd
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Sigurður Einarsson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Jón Magnússon
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Killer Joe
- Kjartan Jónsson
- Sólveig Klara Káradóttir
- Magnús Paul Korntop
- Kristín Ástgeirsdóttir
- Bjarki Steingrímsson
- Lífsýn fræðsla og forvarnir
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Linda Lea Bogadóttir
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Lýður Pálsson
- Mafía-- Linda Róberts.
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Mál 214
- Alfreð Símonarson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Marta B Helgadóttir
- Methúsalem Þórisson
- mongoqueen
- Morgunblaðið
- Steinar Immanúel Sörensson
- Gísli Tryggvason
- Ólafur Örn Nielsen
- Jón Svavarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Ragnarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Perla
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Helgi Kristófersson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Katrín
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gunnarsdóttir
- Sigurður Rúnar Sæmundsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigríður Jónsdóttir
- Birgir R.
- Hreiðar Eiríksson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefana Gunnlaug Karlsdóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Jóhann Pétur
- Sunna Dóra Möller
- superhúsfrú
- Johann Trast Palmason
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þorsteinn Magnússon
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Vefritid
- Vertu með á nótunum
- Vilborg G. Hansen
- Elsabet Sigurðardóttir
- Kjartan Magnússon
- Kristján P. Gudmundsson
- Loftslag.is
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Skúmaskot tilverunnar
- Stefán Júlíusson
Á leiðinni á slysstað
31.7.2008 | 11:28
Sjúkraflutningsmenn, lögregla og aðrir sem koma fyrstir á slysavettvang velta því sennilega fyrir sér á leiðinni hvað kunni að bíða þeirra á slysstaðnum, hvort fólk hafi sloppið með skrámur, hvort einhverjir séu stórslasaðir eða hvort orðið hafi jafnvel banaslys?
Allir geta ímyndað sér hvernig aðkoman getur verið þegar alvarlegt umferðarslys hefur orðið. Við blasir slasað fólk, skelfingu lostið og hrætt; fólk sem hefur misst meðvituð; fólk sem er fast í bílflakinu eða fólk sem flogið hefur út úr bílnum við slysið vegna þess að það var ekki í bílbelti. Þessi lýsing er bara brot af þeim aðstæðum sem hægt er að ímynda sér að séu á vettvangi alvarlegs umferðarslyss.
Skyldi nokkurn tímann vera hægt að venjast þessu?
Þeir sem starfa við sjúkraflutninga, lögreglan og aðrir sem koma að hinum slasaða hljóta að kenna oft streitu og mikils álags í starfi. Þetta fólk á sínar fjölskyldur sem það kemur heim til að lokinni vakt, eftir að hafa e.t.v. verið að klippa einhvern út úr bílflaki, reyna að lina þjáningar stórslasaðra einstaklinga eða reynt að blása lífi í einhvern sem þá þegar kann að vera látinn.
Í álagsstarfi sem þessu er auðvelt að brenna út . Vissulega hjálpar að hafa fengið góðan undirbúning og þjálfun. Svona starf er heldur ekki fyrir hvern sem er. Sumir segja að með reynslunni verði maður ónæmari og taki síður svona lagað inn á sig. Aðrir vilja meina að því lengur sem maður gegnir starfi sem þessu og því meira sem maður upplifir af hörmungum aukist kulnunin. Vissulega hlýtur þetta að vera mjög einstaklingsbundið.
Þeir sem gegna þessum störfum þarfnast þess að hlúð sé að andlegri líðan þeirra í kjölfar erfiðrar reynslu í vinnunni, hvort heldur í formi handleiðslu, frítíma eða annarrar umbunar.
Þannig getum við sýnt þeim að við virðum störf þeirra og að okkur standi ekki á sama um sálarlíf þeirra.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:23 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Mínir tenglar
- Í þínum sporum. Höldum saman gegn einelti og kynferðislegri áreitni Verkfærakista við úrvinnslu eineltismála. Frjáls og frír aðgangur
- Heimasíða Kolbrúnar Baldursdóttur Sálfræðistofan, greinar og námskeið
Athugasemdir
Ég er svo sammála þér Kolbrún mín og mjög góður pistill hjá þér að venju.
Kristín Katla Árnadóttir, 31.7.2008 kl. 15:43
Kolbrún þú ert að tala um mál sem menn taka kannski sem sjálfsagt en það eru kannski fleirri fletir á þessu en þú ert að sjá, það eru ekki allir í þessu sem fullri vinnu, á landsbyggðinni eru menn í þessu í hlutastafi, ekki að það sé nokkuð við það að athuga er eina ráðið til að halda uppi þjónustu sem við viljum. En við þær aðstæður er fjölskyldan nær því sem er að gerast, pabbi eða mamma eru allt í einu farin þegar síminn pípir og það oft með stuttri kveðju úr miðjum sögulestri, og stundum held ég að littlir hugar hafi áhyggjur af foreldrinu sem fór og hvernig því líður þegar það kemur til baka, eða varð foreldrið sem eftir varð pirrað vegna þess að það var skilið eftir eitt með heimilið. Þannig að það er ekki auðvelt að halda utanum þá sem að þessu koma.
Og það sem er það skrýtna við þetta er að þetta er ekki mikilsmetið af launagreiðandanum eða heldur minna en leiðbeinendur í vinnuskólanum.
Einar Þór Strand, 31.7.2008 kl. 20:04
Þetta hlýtur að vera með erfiðari störfum, vildi ekki þurfa að koma að slysum, þó svo ég hafi samt upplifað að vera á eftir bílum sem lentu í árekstri og í öðrum bílnum dó ung stúlka meðan við biðum eftir sjúkrabíl það var nú með því skelfilegra sem ég hef séð, hún dó rétt áður en þeir komu og það var ekkert hægt að gera svo þeir breiddu yfir hana, ég man að ég hrópaði "gerið eitthvað, ekki hætta" en svona endaði þetta. Ég keyri svo oft þessa leið í bæinn, þetta var við Litlu Kaffistofuna og ég hugsa alltaf um þessa fallegu ungu konu í hvert sinn sem ég fer þarna og bið fyrir henni um leið. Gleymist aldrei
Ásdís Sigurðardóttir, 31.7.2008 kl. 23:12