Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn?

Metingur af þessu tagi í hópi ungra barna fer sennilega hratt minnkandi og hver veit nema við heyrum aftur það sem margir muna e.t.v. eftir:
Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn eða pabbi minn er lögga en ekki pabbi  þinn. Smile

Þetta er eins og með tískuna og svo ótal margt annað. Við förum í hringi, það gamla kemur aftur, eitthvað sem talið var jafnvel gjörsamlega útilokað að myndi nokkurn tíman sjást framar.

Það er eitthvað notalegt við það að eiga von á að fá aftur þessi gömlu gildi inn í samfélagið, alla vega sum þeirra. Sjálfssagt koma þau mörg hver með nýju ívafi og breyttum áherslum.
Nú á maður von á að heyra:
Mamma mín er sterkari en mamma þín eða pabbi minn er betri kokkur en pabbi þinn. Wink

Hvað veit maður hvað dúkkar upp í hugarheimi barna í því nýja og breytta þjóðfélagi sem blasir við. Börnin verða fljót að finna út hvað þeim finnst skipta máli og hvað þeim finnst markverðast.

Ný gildi, ný forgangsröðun, ný verkefni bíður nú allra aldurshópa.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Mikið er ég sammála þér.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 11.10.2008 kl. 10:36

2 Smámynd: Vilberg Helgason

Athyglisvert nokk.

Þú hlýtur að heyra aðallega í börnum í þingholtunum eða á arnarnesinu  því hjá börnunum mínum og öðrum í blokkarhverfunum hérna í úthjara Reykjavíkur hafa þessir samanburðir ekkert haft með ríkidæmi að gera.

Börn bera ennþá saman krafta foreldra sinna og hver eigi skemmtilegri foreldra. Það sem helst má tengja við peningasamanburð hefur verið "til hversu margra landa hefur þú farið" og "hvað átt þú marga tölvuleiki"

Þegar ég var gutti var þetta eins, maður bar sig saman við önnur börn og helstu samanburðaratriðin voru kannski hvort fólk ætti svarthvítt eða litasjónvarp og hvort reiðhjólin væru eins eða þriggja gíra.

Vilberg Helgason, 11.10.2008 kl. 18:09

3 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Nei Vilberg, þetta heyrist ekki oft sagt nákvæmlega svona heldur er metingur á þessum nótum e.t.v. meira sýndur með ýmsu öðru móti.

Því er ekki að neita að börn foreldra sem hafa mikið fé milli handana eiga til að sýna það með einum eða öðrum hætti að foreldrar þeirra eru efnaðri en margir aðrir og geti veitt sér flest sem hugur þeirra og barnana girnist.

Foreldrarnir eru jú helsta fyrirmyndin og börnin tileinka sér viðhorfin og venjast lífsstílnum. Lífstíll efnaðra foreldra er mjög oft frábrugðinn lífstíl foreldra sem hafa minna eða lítið fé milli handanna. 

Bestu kveðjur til þín.

Kolbrún Baldursdóttir, 11.10.2008 kl. 19:16

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband